Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.02.1960, Blaðsíða 39

Sjómannablaðið Víkingur - 01.02.1960, Blaðsíða 39
Um skattfrádrátt. 19. þing F.F.S.Í. skorar á ríkis- stjórnina að fella niður úr 1. gr. reglugerðar „um skattfrádrátt vegna iðgjalda af ólögboðnum líf- eyristryggingum“, frá 8. júlí 1954, 7.000,00 krá hámarksákvæðið. Þannig að 10% megi í öllum tilfell- um draga frá skattskyldum tekjum þegar það er sannanlega greitt vegna lífeyristryggingar. Lífeyrissjóður. 19. þing F.F.S.Í. skorar á Alþingi það, er nú situr, að breyta ákvæðum laga um almannatryggingar. Þann- ig að ekki sé skertur réttur þeirra til bóta af almannatryggingum, er keypt hafa ólögboðna ífeyristrygg- ingu. Jafnnframt verði fellt niður úr sömum lögum ákvæði um skerðingu ellilífeyris, þótt ellilífeyrisþegi hafi einhverjar tekjur af eigin vinnu. Þá verði breytt þeim ákvæðum í reglugerð allra lífeyrissjóða, sem öðlast hafa viðurkenningu f jármála- ráðuneytisins, að við flutning sjóð- félaga milli starfsgreina komi til endurkaupa í lífeyrisréttindum, all- ar þær greiðslur, sem komið hafa í sjóðinn hans vegna. (Samanber 17. gr. laga um lífeyrissjóð togarasjó- manna). Greinargerð. Það verður að teljast óeðlilegt að maður, sem greiðir fulla greiðslu til almannatrygginganna, verði fyrir skerðingar-ákvæðum þeirra trygg- inga, þótt hann kaupi frekari, lög- verndaðar líeyristryggingar og sé með því að safna til elliáranna, jafn- framt því sem þessar aukatrygging- ar hafa í öllum tilfellum stofnast sem kjarabætur við launasamninga, á hverjum tíma. Þá er það einnig óeðlilegt, að þeir aðiljar, sem öðlast hafa rétt til elli- lifeyris, skulu verða fyrir skerðingu á þeim bótum, þótt þoir geti skapað sér einhverjar tekjur með vinnu, sem þeim er hæf. Varðandi síðasta atriði tillögunnar er það, meðal ann- ars, órétt að við tilfærslu sjóðfélaga hefur yfirleitt aðeins komið til end- urgreiðslu þau 4%, sem sjóðfélag- inn hefur greitt sjálfur og jafnvel vaxtalaust. Þrátt fyrir að sjóðfélög- um eru reiknuð til tekna allar greiðslur í sjóðinn hans vegna. — Þetta fyrirkomulag getur í ýmsum tilfellum komið þannig út að sjóð- félagi sem flytzt til og kemur á iöngu tímabili inn á tvo til þrjá sjóði, getur staðið uppi réttindalaus með öllu. Bátaæfingar og útbúnaður björgunarbáta. 19. þing F.F.S.l. leggur ríka á- herzlu á, að ekki verði slakað á lög- skipuðum bruna- og bátaæfingum um borð í skipunum og beinir því þeim tilmælum til Skipaskoðunar ríkisins, að hún skipuleggi kennslu og æfingar með gúmmíbáta yrir skipshafnir, þar eð ekki er hægt að koma við reglulegum æfingum með þá um borð í skipunum eins og á- kveðið er með trébátana. Þá beinir þingið því til skipaskoðunarstjóra, að hann beiti sér fyrir, að sett séu endurskinsmerki í alla björgunar- báta. allar olínr og feitir til skipa VÍKINGUR 39

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.