Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.02.1960, Blaðsíða 31

Sjómannablaðið Víkingur - 01.02.1960, Blaðsíða 31
Jón Magnússonn, skipstj., ásamt ungum háseta í brúarglugga. EiSisfjörð (Itivdleq), sem liggur utar og norðar. Tóku þeir á Hug til flutnings, vestur með sér frá Kulusuk, eitt- hvað 50—60 tunnur af sementi og nokkrar vatnsslöngur ásamt fleiru smávegis dóti. — Var svo lagt af stað suður með landi frá Krosseyjum þann 16. sept. og lentu þeir í hverri svaðilförinni eftir aðra sökum illviðrahams sem þá gekk yfir. Komust þeir loks til Sisimiut (Grenjastaður, sem Danir kalla Holstensborg) þann 25. október. Var þá afráðið að skilja bátinn þar eftir og fara flugleiðis heim. — Fór svo um sjóferð þá. Má segja að þessir íslenzku sjómenn hafi orðið að leggja á sig mikið erfiði og hætt- ur fyrir slæman árangur af van- hugsuðum tilgangi. En nú vildi eigandi Hugs, Kristófer Oliversson skipstjóri, fá bát sinn aftur heim. III. I apríl s.l. hitti ég kunningja minn, Jóhann Pétursson rithöf- und. Tjáði hann mér að nú ætlaði hann að láta þann draum sinn rætast að fá að sjá Grænlands feikna fjöll og fögru strandir. Hann væri búinn að ráða sig sem matsvein á bát sem orðið hefði innlyksa í Grænlandi í fyrra, og færu þeir flugleiðis í byrjun júní að sækja hann. Yrði flogið til Langafjarðar með viðkomu í Kulusuk og þvert yfir Græn- landsjökul og svo þaðan með þyrlu til Sisimiut. Ég sló því fram við hann hvort hann gæti ekki útvegað mér skipsrúm sem háseta í þessum leiðangri. Hann taldi tormerki á því, en stýri- mann vantaði, en ég var ófær til VÍKINGUR þess. Nokkru síðar talaði Jóhann við mig símleiðis frá Grindavík og taldi mig á að gerast stýri- maður, því ég þyrfti ekki nema vikuna til þess að standast nauð- synleg próf í þessu skyni. Ég taldi það ekki hægt. En samt hvatti hann mig til þess að tala við Jón Magnússon, sem yrði skipstjórinn í förinni og verið hefði stýrimaður í leiðangrinum í fyrra. Tókst mér eftir nokkra fyrirhöfn að finna Jón, sem sagði mér að eiginlega væru allir ráðn- ir' nema stýrimaður, en hann vidi gjarna hafa mig með og lof- aði hann að láta mig vita ef eitt- hvað breyttist svo ég gæti fengið skipsrúm. Leið svo og beið að komið var fram í júní og ekki var ferðin hafin. Fór svo að Jóhann Péturs- son varð að segja upp matsveins- starfinu, því hann var ráðinn á síld norður á Raufarhöfn og bauð þá Jón mér starfið í staðinn, ef ferðin yrði farin. Nú leið bæði júní og júlí, en ekki varð af förinni, en ég var staðráðinn í að komast með hve- nær sem hún yrði farin. Var ég búinn að fá loforð verkstjóra míns, (en ég vinn hjá Reykja- víkurbæ) um að gefa mig eftir þann tíma sem ferðin tæki. Loksins, föstudaginn þann 14. ágúst sl. kom verkstjóri minn, Jón ólafsson, til mín þar sem ég var að raka grjóti af götu í einu hverfi bæjarins, og tjáði mér að nú væri komið að Grænlandsferð- inni. Tilvonandi skipstjóri minn, Jón Magnússon, biði eftir mér í símanum og vildi fá mig með sér suður í Hafnarfjörð til að taka út kostinn, því nú átti að fara á vb. ,,Dóru“ GK 49, vestur og draga Hug heim. Við Jón Magnússon fórum síð- an saman suðureftir og pöntuð- um matarbirgðir, sem áttu að endast tíu mönnum í þrjátíu daga. Ég var nú orðinn lítt vanur slíkum útreikningum, því í fyrsta og eina skiptið sem ég hafði áður verið kokkur til sjós, var á skaki fyrir vestan eitt vor og sumar árið 1926 eða 7 og hafði þá heitið að þeirri raun lokinni að gefa mig aldrei til slíks aftur. En það er nú önnur saga. IV. Miðvikudaginn 19. ágúst var svo siglt af stað kl. 4 e. h. og tek- ið strik fyrir Garðsskaga í þægi- legri NA. átt, sem hélzt þó held- ur vaxandi næstu dægur. Skipshöfnin sem þátt tók í þessum leiðangi’i voru þessir menn: 1. Jón Magnússon, skipstjóri, Reykjavík, 53 ára. 2. Pétur Guðjohnsen, stýri- maður, Reykjavík, 31 árs. 3. Eggert Laxdal, I vélstjóri, Vestmannaeyjum, 34 ára. 4. Þorleifur Vagnsson, II vél- stjóri, Reykjavík, 32 ára. 5. Ragnar V. Sturluson, mat- sveinn, Reykjavík, 50 ára. 6. Bjarni Magnússon, háseti, Kópavogi, 20 ára. 7. Sigurður Ólason, háseti, Vestmannaeyjum, 22 ára. 8. Hermann Stefánsson, há- seti, Reykjavík, 25 ára. 9. Sigurður Þorvaldsson, há- seti, Selfossi, 19 ára. 10. Birgir Sigurgeirson, há- seti, Selfossi, 16 ára. Ég varð sjóveikur fyrstakvöld- ið við matseldina og gekk þá einn hásetinn (Sig. Þorv.) frá matn- um fyrir mig. Gekk síðan allt vel þar til á laugardag, að þá var orðið mjög hvasst, um 9 vind- stig samkv. veðurfr. Var ég þá orðinn sjóveikur strax um morg- uninn. Bögglaðist ég þó við að elda morgungrautinn og sjóða saltkjöt og baunir í miðdagsmat, sem ég þó aldrei gat borið á borð. Skipverjar nældu sér sjálfir í kjötið upp úr pottinum ásamt kartöflum og drukku kaffi á eft- ir, en baunasúpan varð að brauði sem ég gaf Ægisbúum um kvöld- ið. Á fimmta tímanum eftir há- degi þennan dag sást til lands á Grænlandi, og stefndum við þá á Spalmnd (Ikeq) sem liggur norð- austan við Drangey (sem Danir 81

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.