Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.02.1960, Blaðsíða 35

Sjómannablaðið Víkingur - 01.02.1960, Blaðsíða 35
Myndimar eru af tveim rússneskum geimflauga hundum, heitir annar Otvazhnaya (Hughraustur), en hinn Zhenchuzhnaya (Perla) og meS þeim er kanína, sem tók þátt i geimflugi þeirra 10. júli s.l. Hughmustur hefur farið fjórar ferðir út í geiminn, og hefur alltaf komið jafnhress til baka. Perla var með honum í síðustu ferðinni, og fór þá frá þriggja mánaða hvolpum sínum í ferða- lagið. Þegar hún kom aftur úr ferðalaginu var það hennar fyrsta verk að gefa hvolpum sínum að sjúga. Efri myndi'n er tekin af sjálfvirkri myndavél í geimflauginni, af hundunum úti í geimnum. Síðari riiyndn er tekin strax eftir komu þeirra úr fluginu. Hinn þungi róður sjávarútvegsins. Dcyjandi þjóðflokkar S-Afríku. Að áliti mannfræðingsins Dr. Hoffmann frá Þjóðminjasafninu í Bloemfontein, eru nú liðin mörg ár frá því að kvikfjár- ræktar þjóðflokkurinn Hotten- tottar varð útdauður. Fyrir stuttu síðan er Dr. Hoffmann kominn úr rannsóknarleiðangri til Angola og Betschuanalands, þar sem hann reyndi árangurs- laust að afia sér einhverja upp- lýsinga um afdrif þessa merka þjóðflokks. Þó ekki væri nema sögusagnir frá nábúum þeirra um einstakar fjölskyldur. En það var tilgangslaust. Sömu ör- lögin virðast steðja að Busk- mönnum í Kalahari-landssvæð- inu, en þeir eru af sama ætt- stofni og Hottentottarnir. í undirbúningi er nú þriðji leið- angurinn til þess að reyna að rannsaka lifnaðarhætti og fyrri Hottentottar (útdauðir). menningu þessara deyjandi dvergfólks. Talið er að nú séu aðeins lifandi um 5000 Busk- menn, og um það bil helmlngur þess fólks starfandl á Jarðelgn- um hvítra landeigenda. Hinn frjálsl helmingur þessa fólks lifir eymdarlífi í frumskóginum og nærist á skordýrum, fuglum og trjágróðri. Sólin og jörðin. Hér má sjá fyrstu myndina, sem tekin hefur verið utan úr geimnum, af sólinni og jörðinni á sömu mynd. Þetta tókst fyrir skömmu síðan úr amerísku Þór- Jörðin og sólin á sömu mynd. flugskeytl í um það bil 500 km. fjarlægð frá jörðunni. Af mynd- inni má sjá hvemig umhverfið kemur til með að líta út fyrir þeim mönnum sem siðar koma til með aö fara út I geiminn frá jörðunni í geimförum: Sólin geislar við hlið jarðarinnar á djúpsvörtum himingrunni. Skýrslur sanna, að umferðar- hættur i nútima stórborgum valda eldra fólki mestrl slysa- hættu. Gamalt fólk fylgist ekki með hraðanum, og öllum þeim ráðstöfunum sem gerðar eru til þess að auðvelda umferðina. Umferðarlögreglan í Berlín tel- ur, að fenginni reynslu, nauð- synlegt að viðurkenna þá stað- reynd, að fyrirlestrar, auglýs- ingamiðar og kvikmyndaþættlr dugi ekki til skýringar fyrir eldra fólk. Það verði að finna einhver önnur ráð. Útbúinn var kennsluvagn, er fluttl gestina um mestu umferðargötumar, og útskýrt var með hátalara hvem- ig viðhorf vagnsins var gagn- vart umferðinni. VÍKINGUR 35

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.