Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.02.1960, Blaðsíða 22

Sjómannablaðið Víkingur - 01.02.1960, Blaðsíða 22
Gríski skuttogarinn „Evangelistra 4.“ á Dónárfljóti tilbúinn tii siglingar. Fyrir nokkru var skýrt frá því í Víkingnum að Rússar væru að byggj a marga skuttogara, um 2300 tonn að stærð, og væri þeim ætlað að stunda veiðar við Vest- urströnd Afríku, eða jafnvel sunnar. Þessi frétt kemur heim við það, sem nú er vitað um al- hliða framkvæmdir þeirra að undibúningi fiskveiða á fjarlæg- um höfum, og virðist svo að í áætlunum þeirra sé vel fyrir öllu séð. Vitað er að um borð í Neva eru 11 viðgerðarverkstæði útbú- in nauðsynlegum tækjum, og fjöldi tæknilærðra manna til að annast viðhald og • viðgerðir á vélakosti veiðiskipanna, sem ætl- að er að halda úti mánuðum sam- an. Þá hefir verið réttilega bent á, að eftir að Rússar luku smíði ís- brjótsins Lenin, muni þeim ekki verða skotaskuld úr að byggja kjarnorku verksmiðjuskip, og gætu jafnvel orðið löngu á undan Japönum, sem hafa hafið undir- búning að smíði þess háttar veiði- skips. Eru kannske að því nú þegar! Enda þótt flutningur á eldsneyti til veiðiskipanna sé í sjálfu sér ekkert vandamál nú á dögum. Síðastliðið ár hefir verið æði viðburðaríkt hvað snertir bygg- ingu nýtízku togara. — Hinn 23. maí 1959 hljóp af stokkunum hjá austurrísku skipasmíðastöðinni DDSG-Schiffswerft í Korneu- burg á bökkum Dónár nálægt Vínarborg 1300 brt. tonna skut- togari, byggður fyrir gríska út- gerðarmanninn George El. Arco- ulis. Þetta var fyrsti skuttogar- inn, sem skipasmíðastöðin byggði en áður hafði hún byggt tvo út- hafstogara fyrir þýzk útgerðar- félög. Skuttogarinn hlaut nafnið Evangelistria IV. Hann er um 76 metra langur, ristir 4,8 metra, ganghraði 13,5 sjóm. Knúinn tveim 800 ha. B&W Dieselvélum, sem eru tengdar við eina skipti- skrúfu. I skipinu eni frystivélar frá firaaanum SAMIFI í Mailand og er þ. á. m. sjálfvirk vél, sem framleiðir ís. Eins og meðfylgjandi mynd sýnir, er Evangelistria frekar lík skemmtisnekkju en togara! Það hefði þótt tíðindum sæta fyrir nokkrum árum að nýtízku togarar væru byggðir inni í miðri Evrópu, en tæknin nú á dögum virðist ekki vera staðbundin og Austurríkismenn ætla sér að leggja sinn skerf fram og verða hlutgengir í samkeppninni um byggingu fiskiskipa af nýtízku gerð og útbúnaði. Og áfram heldur kapphlaupið um að ná í þann „gula, rauða, gráa og bláa“ úthafsfisk. Vestrænar og austrænar fisk- veiði- og iðnaðarþjóðir bókstaf- lega „hrifsa“ hver frá annarri allar hugsanlegar nýjungar í byggingu og tækniútbúnaði alls konar veiðiskipa. Til dæmis leita Rússar til V- Þjóðverja með smíði fiskvinnslu- véla. Japanar og Israelsmenn gera sameiginlega út á túnfisk- veiðar útaf ströndum V-Afríku og hafa pantað slík veiðiskip í Frakklandi eftir japönskum teikningum. Frakkar sækja nú einnig veiðitækni, sem Banda- ríkjamenn nota við túnfiskveiðar undan vesturströnd Ameríku. — Engin þjóð getur lengur „sofið“ á sínum tækninýjungum á sviði fiskveiða, því að óðar skjóta aðr- ar nýjungar upp kollinum, jafn- vel á ólíklegustu stöðum. I náinni framtíð verður óefað um að ræða gífurlega sókn og jafnvel æðisgengið kapphlaup stórþjóðanna á djúpmið og úthöf. Orsakiraar til þess má eflaust telja vaxandi matvælaþörf þjóð- anna vegna fólksfjölgunar. Hér munu Rússar ogBandaríkjamenn verða þyngstir á metunum, enda þótt þjóðir eins og t. d. Bretar og Þjóðverjar, Frakkar og jafn- vel Pólverjar fylgi fast eftir. Það er ólíklegt að hinar gömlu, hefð- bundnu fiskveiðiaðferðir eigi sér langa framtíð úr þessu. Fiskimaðurinn í gömlu merk- ingu þess orð mun brátt verða úr VÍKINGUU Þýzki skuttogariiin Carl Wiederkehr í reynzluferð í árslok 1959. 22

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.