Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.02.1960, Blaðsíða 15

Sjómannablaðið Víkingur - 01.02.1960, Blaðsíða 15
leika okkar myndu verða um 40% af verðmæti erlenda iðnvamings- ins. Til þes að ná framangreindum árangri þarf að flytja allan hamp inn óunninn, en gerfiefnið frá stóriðjuverum. Síðan yrði það spunnið, tvinnað og hnýtt í nýj- ustu gerð véla. Veiðarfæraverk- smiðjuiðnaður er aðeins hag- kvæmur í stórum stíl. Notkun okkar er það mikil, að stærsta, hagkvæmasta vélasamstæða hent- ar fyrir hana eina. Hins vegar er mjög líklegt, að um útflutning iðnvarnings gæti verið að ræða, sem ódýr umframframleiðsJa. Allar nágrannaþjóðir okkar flytja inn hamp frá Afríku og Brasilíu, kemba hann og spinna 1 vörur til útflutnings. Greinar- höf. hefur kynnst framangreindri starfsemi á Norðurlöndum og m. a. komið í eina slíka verksmiðju, er starfrækt var allan sólarhring- inn og framleiddi 4000 tonn á ári svo til eingöngu fyrir Ame- ríkumarkað. Verksmiðja þessi starfrækti eigin aflstöð með olíu og kolakyntum gufukötlum sem orkugjafa. Er mjög ólíklegt, að við yrðum ekki samkeppnisfærir í stóriðju á þessu sviði við eðli- legt fjárhagskerfi. Fyrsta verkefnið ætti að vera að fullnægja veiðarfæraþörfinni. Stofnkostnaður slíks iðnaðar er vafalaust sá lægsti, sem við eig- um völ á miðað við gjaldeyris- hagnað. Með samvinnu eða sam- einingu þeirra tveggja verk- smiðja, sem eftir eru í landinu, fullnýtingu eldri véla þein’a, á- samt kaupum á nýjustu gerð véla til fullnýtingar verksmiðjuhús- næðis þeirra, mætti margfalda framleiðslu veiðarfæraiðnaðar- ins. Þótt orkuþörf slíks iðnaðar sé nokkuð mikil, þarf engar ráð- stafanir að gera þess vegna, um- fram þær, sem þegar eru fyrir- hugaðar. Aukning starfsfólks myndi verða um 150 konur og karlar. Þess má geta, að stofnkostnað- ur Áburðarverksmiðjunnar var 130 millj. kr. og framleiðslan s.l. ár 38 millj. kr. að verðmæti. Með VÍKINGUE um 15 millj. kr. viðbótarfjárfest- ingu í veiðarfæraiðnaði samkv. framansögðu, sem að mestu yrði vélakaup, benda líkur til, að ár- legur gjaldeyrisspamaður yrði 25—30 millj. kr. Mætti síðan vinna að íulinýtingu veiðarfæra- iðnaðarins á fáum árum. A undanförnum tímum upp- bóta og niðurgreiðslna hefði ver- ið hægt að færa veiðarfæraiðnað- inn að verulegu leyti inn í landið með því að greiða niður innlend veiðarfæri og stuðla með því að framtíðar gjaldeyrissparnaði. — Það var ekki gert, en þess í stað hafa niðurgreiðslurnar sumpart stuðlað að gjaldeyriseyðslu. Samkvæmt upplýsingum frá Norges Industriforbund 29. okt. s.l. er framlag Norska ríkisins til að greiða niöur veiðarfæri 6— 7 millj. n. kr. á ári. Greiddar eru niður allar vörur úr hampi og bómull. Af innfluttum fiskinet- um úr þessum efnum er 5% inn- flutningstollur. Norðmenn hafa ríkiseinkasölu á innfluttum veið- arfærum og virðist hlutverk hennar að sjá um að innflutning- urin lami ekki starfsemi innlenda iðnaðarins, enda er mjög lítill innflutningur tilbúinna vara. Þannig telja Norðmenn sig ekki hafa efni á því að láta at- vinnumöguleika veiðarfæraiðnað- arins ónotaða. Hafa þeir samt margskonar stóriðnrekstur og fjölþættara atvinnulíf en við. Nú munu uppi ráðagerðir um að flytja í vaxandi mæli inn veið- arfæri fullbúin til notkunar (upp- sett), á lággengi þess innflutn- ings, frá Japan. Verður í því sam- bandi að athuga þjóðhagslegt gildi vinnunnar við uppsetningu veiðarfæranna. Auk verksmiðjuiðnaðarins vinna árlega um 400 manns að meira eða minna leyti við neta- hnýtingu hjá stærstu netagerð landsins. Liggja ekki fyrir skýrslur um hve margt fólk á öllu landinu tekur þátt í nefndri vinnu, en líkur benda til, að ekki minna en 2000 manns taki þátt í henni sem aðalvinnu eða ígripa- vinnu vetrarmánuðina. Þessi vinna er mjög hagstæð fyrir þjóðarbúið, því að hér er um heimilisiönað í skammdeginu að ræða, sem nýtist fyrir út- flutningsframleiðsluna. — Hana stunda að mestu gamalt fóik, ör- yrkjar, sjúklingar og duglegar húsmæður, sem komast ekki frá heimiium sínum til annarrar vinnu. Á sumi’in dreifist nefnt vinnuafl á hagkvæman hátt til atvinnuvega þess árstíma. Hér þarí að meta raunverulega þjóðarhagsmuni, en standa á verði fyrir annarlegum tíina- bundnum stundarhagsmunum. — Vinna þessa fólks er einn þáttur í fiskveiðunum, og við eigum eklti að iáta hana af hendi frekar en fiskveiðarnar sjálfar. Lega landsins, mikilvægi fisk- veiðanna, orka fallvatnamia, sem þegar er búið að beizla, duglegt, fjölhæft iðnverkafólk ásamt tækni nútímans, skapa sameigin- lega ákjósanleg skilyrði fyrir veiðarfæraiðnað. Á gengi út- ílutningsframieiðslunnar og með jafnrétti í skattaálagningu við Averskonar rekstursform mun hann geta keppt við frjálsan inn- flutning og verið samkeppnisfæi’ við iðnað vestrænna þjóða. En það er álitamál, hvort ekki á að fara að dæmi Norðmanna og greiða þjóðhollum útgerðarmönn- um, sem kaupa heldur innlenda framleiðslu, þegar hún er á sama verði og útlend, niður innlend veiðarfæri. Fyrst vel efnuð þjóð grípur til slíkra ráða til að hamla á móti sérhagsmunum innflutn- ingsverzlunarinnar, sem nýtast lítið fyrir þjóðarbúið, því skyldi ekki fátæk þjóð, sem á við gjald- eyrisetrfiðleika að stríða, fram- kvæma hliðstæðar ráðstafanir? Hann tók ósigrinum eins og maður — kenndi konu sinni um hann. Það er hægt að geyma allt í spíritus — nema leyndarmál (Stoi-m P.). 15

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.