Sjómannablaðið Víkingur - 01.07.1966, Qupperneq 14
GRASKARFINN ER FURÐUFISKUR
Graskarfinn getur oröið 1 meter á lenga.
1 Austurlöndum, einkum í
Kína, er fiskur sem kallaður er
Graskarfi — ctenopharyngod'in
idella, — er hann merkilegur að
því leyti, að hann er grasæta, og
heldur sig því mikið í skurðum
og vatnsfarvegum, þar sem gróð-
ur er mikill. Er hann athafna-
samur að naga gróðurinn, sem
annars mundi vaxa og stífla
vatnsrennslið á skömmum tíma.
Kínverjar telja að 7 ára gam-
all geti hann orðið um 30 kg,
enda talið að hann éti 1,5 sinnum
þyngd sína á degi hverjum. Hanti
syndir afbragðs vel og stekkur,
að sögn, 2 til 3 m upp úr vatninu.
Sennilega er þetta enn ein saga
um þá „stóru.“ En hvað um það,
þar sem gróður vex ört er hann
mjög nytsamur að halda við
straumlitlum áveitum eða af-
rennslisskurðum.
Síðan 1948 hafa verið gerðar
tilraunir í allstórum stíl með
flutning á karfaseiðum þessum
til Norðurálfunnar, — einkum
Austur-Evrópu, meðal annars
Ungverjalands og Póllands. —
Benda skýrslur um þessa starf-
semi til þess að karfinn venjist
fljótlega loftslaginu og græðgi
hans er óseðjandi í allar tegundir
gróðurs í vatninu. Á 2—3ja rn
dýpi getur hann örugglega lifað
þó frostið fari niður í 25 stig á
C. Erfiðlega hefir gengið að fá
hann til að auka kyn sitt, en það
hefir þó tekist að sögn í Ung-
verjalandi.
Danir eiga í nokkrum erfið-
leikum með að viðhalda af-
rennslisskurðum hjá sér, sem
taldir eru samanlagt um 18,000
km, ýmist á vegum ríkisins eða
sýslufélaga. Fara árlega milljón-
ir króna í að hreinsa þá. Hafa
verið uppi áætlanir um að blanda
eitri í vatnið til þess að hefta
gróðurinn. En vísindamenn eru
því andvígir vegna þess, að það
muni eyða fiskinum í fjörðum og
ám. Nú er í ráði að flytja inn
kínverska grasfiska til þess að
setja í danska læki, og eiga þeir
von á eitt þúsund seiðum frá
Hong Kong. Ef fyrirtækið lukk-
ast, eygja þeir möguleika til
sparnaðar við „grasklippingu" í
lækjum og skurðum, og losna þá
um leið við deilur um það, hvort
ríkissjóður eða sveitafélögin eigi
að halda lækjunum við.
Endurs. úr Berl Tidende.
Hallgr. Jónsson.
1111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111! 111 i
SPARISJÓÐUR
VÉLSTJÓRA
Bárugötu 11
Siml 16593
Pósthólí 425
*
Annast öll
venjuleg spari-
sjóðsviðskipti.
Opið daglega
kl. 3—5.30.
laugardaga 10—12.
196
VlKINGUR