Sjómannablaðið Víkingur - 01.06.1975, Blaðsíða 26
SKOLASLIT
VÉLSKÓLA ÍSLANDS
Hinn 31. maí síðastliðinn var
Vélskóla íslands slitið í 60. sinn
við hátíðlega athöfn. Andrés Guð-
jónsson, skólastjóri flutti skóla-
slitaræðu og sagði m. a. á þessa
leið:
„Stofnár Vélskólans er 1915 en
upphaf vélfræðideildar við Stýri-
mannaskólann. Frá þeirri deild
var fyrst tekið próf í apríl 1913
og voru próftakar 6. Næsta ár
gengu 9 undir próf og 1915 voru
þeir 7. Allir þrír fyrstu vélstjór-
arnir, sem próf tóku 1916, höfðu
áður lokið prófi frá þessari deild.
Eins og kunnugt er, var það
M. E. Jessen, danskur maður,
sem ráðinn var hingað í fyrstu
til að kenna við vélfræðideildina.
Fyrsta árið kenndi hann skip-
stjóraefnum eðlisfræði og vél-
fræði, en haustið 1912 tók hin
eiginlega vélfræðideild til starfa
og sóttu hana menn, sem leggja
vildu fyrir sig vélstjórn eða skyld
störf. Það kom brátt í ljós að
óheppilegt var að reka þessa
starfsemi sem deild í Stýri-
mannaskólanum, enda var allur
aðbúnaður næsta frumstæður.“
Eftir að hafa rifjað upp for-
sendur fyrir stofnun skólans og
hafa rakið nokkuð sögu hans,
sagði hann:
Húsnæðismál V. í.
„Skólinn hóf starfsemi sína í
kennslustofum Iðnskólans við
Lækjargötu og var þar til ársins
1930. Síðan var skólinn til húsa
í Stýrimannaskólahúsinu við
öldugötu en flutti svo hingað í
Sjómannaskólahúsið 1945, eða
fyrir 30 árum.
Haustið 1935 tók rafmagns-
deild til starfa við skólann. Var
þá vélstjóranámið orðið þriggja
ára nám. Á árinu 1966 var allt
vélstjóranám sameinað í Vél-
stjóraskólanum og hafin kennsla
í vélvirkjun og námið lengt í f jög-
ur ár. Ný lög um vélstjóramennt-
un tóku þá gildi og var nafni skól-
ans breytt í Vélskóla Islands.
Með þessum lögum var skólanum
falin öll vélstjóramenntun í land-
inu.
Vélskóladeild var stofnuð 1966
á Akureyri, 1967 í Vestmanna-
eyjum, 1972 á Isafirði og 1974
á Siglufirði.
Skólinn hefur brautskráð rúm-
lega 2000 vélstjóra á 60 árum.
Árið 1925 var tala brautskráðra
vélstjóra 69, 1935 voru þeir 205,
1945 350, 1955 515, 1965 787 og
árið 1975 er tala brautskráðra
vélstjóra orðin 2045. Þar af hafa
brautskráðst 113 frá Akureyri,
72 frá Vestmannaeyjum, 25 frá
Isafirði og 12 frá Siglufirði, eða
samtals 222 úti á landi.“
Stúlka lýkur vélstjóraprófi
Stúdentar hef ja vélfræðinám
„I fyrsta skipti í sögu skólans
hafa nemendur með stúdents-
menntun stundað nám við hann,
í vetur höfðum við tvo slíka nem-
endur og tóku þeir 1. og 2. stig
saman og ljúka nú 2. stigs vél-
stjóraprófi með prýði og óska ég
þeim til hamingju með það og
vona að framhald verði á því að
nemendur með slíka undirbún-
ingsmenntun sæki þennan skóla
og ljúki vélstjóranámi.
Einnig er það í fyrsta skipti í
sögu skólans að stúlka er nem-
andi við hann og nú í dag — á
kvennaári — er verið að braut-
skrá fyrsta íslenska kvenvélstjór-
ann með mjög hárri einkunn.
Þessi nemandi heitir Guðný Lára
Petersen. Hún tók hæsta próf úr
1. stigi, eða 9,44; meðaleinkunn
hennar í vélfræði var 9,3 og
meðaleinkunn í rafmagnsfræði
9,8, sem er mjög góð frammi-
staða, og til gamans má geta þess
að hún fékk t. d. 7,5 í smíðum og
9,3 í verklegri vélfræði, svo að
eftir þessu að dæma kann hún
bæði að halda á hamri og hand-
leika skiptilykil. Það er mikill
heiður fyrir kvenþjóðina að eiga
slíkan fulltrúa í vélstjórastétt og
óska ég Guðnýju Láru innilega
til hamingju með þennan árang-
ur.“
Nemendurnir sýndu fram
á olíusparnað
„Skemmst er þess að minnast
hve 3. stigs menn vöktu mikla
VÍKINGUR
178