Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.06.1975, Síða 28

Sjómannablaðið Víkingur - 01.06.1975, Síða 28
Á myndinni eru frá vinstri: Jón Páll Ásgeirsson, Hreggviður Hreggviðs- son, Þorvaldur Ingibergsson kennari, Hafsteinn Aðalsteinsson, Ólafur Val- ur Sigurðsson, Guðmundur Kjærnested, Helgi Arason, Þórarinn Ólafsson, Baldur Halldórsson 2. stýrimaður, Sigurjón Simonarson, Björn Haukur Pálsson og Halldór Álmarsson. Þórarinn Ólafsson, Hreggviður Hreggviðsson og Þorvaldur Ingibergsson. Hreggviður stýrimaður Dagana 18. til 21. aprílmánað- ar gafst okkur nemendum 8. bekkjar Stýrimannaskólans í Reykjavík kostur á að fara í 2ja daga kynnisleiðangur með stærstu skipum Landhelgisgæzl- unnar, þ. e. með v/s Ægi og v/s Tý. Var hér um að ræða algjöra nýjung í rekstri skólans, þar sem nemendum hefur áður aðeins gef- izt kostur á að taka þátt í hálfs- dagsferðum með hafrannsóknar- skipi og þá aðallega m/b Hafþóri. Fullyrða má að hér hafi verið stigið stórt spor fram á við á vegum skólans, þar sem ferðir sem þessar eru nokkur próf- steinn á árangur okkar er við höf- um aflað okkur á siglingatækj um skips. Nemendum, sem eru 18 í bekknum, var skipt í 2 hópa og fór hvor með sínu varðskipi ásamt siglingafræði- og tækni- kennurunum þeim Benedikt Al- fonssyni og Þorvaldi Ingibergs- syni. Móttökurnar sem við fengum hjá skipherrunum þeim Guð- mundi Kjærnested, Þresti Sig- tryggssyni og áhöfnum þeirra, voru hinar ágætustu í alla staði. Þá var okkur og gert ljóst að við mættum vera algjörlega sjálfala í brúnni, sem og um allt skip, svo 180 VlKINGUR

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.