Sjómannablaðið Víkingur - 01.06.1975, Qupperneq 33
Brynjólfur Halldórsson skipstjóri:
Islenzk mið fyrir Islendmga
Rœða flutt fyrir hðnd sfómanna á sfómanna'
daginn 1. fúní sl.
Mér hefur verið falið það hlut-
verk að ávarpa ykkur á þessum
38. sjómannadegi og vissulega er
mér það ljúft verk, en ég hefði
kosið að geta talað af meiri bjart-
sýni og með glaðari hug, en að-
stæður nú leyfa. Við höldum
þennan sjómannadag, eins og þið
allir vitið, í skugga verkfalls á
hluta fiski- og farskipaflotanum.
En við höfum séð hann svartan
VÍKINGUR
fyrr, góðir félagar, og ég ætla
ekki að fara að víla hér eða vola,
það hæfir ekki á sjómannadegi,
en ég kemst þó ekki hjá því að
fara nokkrum orðum um það
ástand, sem nú ríkir og bitnar á
mörgum þeim, sem hér eru stadd-
ir í dag.
Margir bundu miklar vonir við
þessi stóru og dýru skip, sem nú
liggja bundin við bryggjur að-
gerðalaus. Það er vissulega
hörmuleg sjón að sjá þennan
fríða flota bundinn dag eftir dag.
Það er lítil reynsla komin á þessi
skip. Mistökin voru vissulega
mörg við smíði þeirra og það má
segja, að sum hafi ekki komið
nema hálfsmíðuð til landsins. Út-
haldið hefur því verið stopult á
þeim flestum eða öllum, og marg-
ir tala nú um, hvort ekki sé bezt
185