Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.06.1975, Síða 45

Sjómannablaðið Víkingur - 01.06.1975, Síða 45
I FULLRI ALVÖRU Eftir Hinrih ívarsson, Merkinesi I öðru tölublaði Víkings 1975 er mjög athyglisvert viðtal við Dr. Sigfús Schopka fiskifræðing um fiskispár og fiskimagn um nokkurra ára bil, sem sannar ótvírætt að uggur okkar eldri manna hefur ekki verið, né er út í bláinn, að hin gegndarlausa sókn í fiskistofnana hér við land stefnir að þjóðhags vandræðum. Þegar litið er til þess að fiskveið- ar eru okkar aðalatvinnuvegur, íer ekki hjá því að stjórnarherr- ar landsins á hverjum tíma þurfi að taka á þessum málum með festu, en ekki með hálfvelgju né vettlingatökum. Við höfum, nú um skeið, búið við 50 mílna landhelgi og ýmsar ályktanir og reglugerðir hafa verið í notkun undanfarið við- víkjandi stærð og gerð fiskiskipa og mílnalengd frá landi, sem skip- um þessum — eftir stærð — hef- ur verið heimilt að nýta. Ég er nú ekki svo alveg hárviss um linumörkin né tonnafjölda bát- anna, en vitað er að 105 tonna bátar hafa verið byggðir — næstum í fjöldaframleiðslu og þeim sé heimilt að vera á svæð- um upp að 4 mílum — sem sagt stærsta gerð af smæstu togskip- um. Hinir sem stærri eru megi ekki toga innar en að 6 mílum. Nú hefur það verið reynsla okkar Hafnamanna að smæstu bátamir hafa togað rétt upp í landsteina, — og mundu hafa far- ið upp í kálgarða okkar, ef von hefði verið um afla, og þeir hefðu flotið þangað — en stærri bát- amir hafa verið á svæðum upp VlKINGUR að 4 mílum — sem litlu bátunum var ætlað. Ekki vantar að kvart- að hafi verið undan þessu seint og snemma og á tímabili fór næst- um hvítt band til sýslumanns Gullbringusýslu, af pottþéttum kærum, með staðarákvörðunum og tímasetningu og vottfest, svo engu skakkaði. Bréfleg áskorun með fjölda undirskriftum héðan úr hreppnum til yfirmanns land- helgisgæslunnar vitum við ekki hvort barst honum í hendur, og enga frekari tilburði sjáum við í betri gæslu. Eitt vil ég þó taka fram, að einn var sá maður hjá Landhelgisgæslunni, þegar við hringdum í síma, sem ekki svar- aði með: Hum og jæja, en tók þessum málum af áhuga (ekki þori ég að segja nafn hans, ef til vill fengi hann bágt fyrir). Leið þá sjaldan á löngu, þar til flugvél sveif hér með landi fram, eða varðbátur kom öslandi og fruss- aði þá stundum 2—3 lausaskot- um í átt til lögbrjótanna, en forð- aðist að hafa hendur í hári þeirra, en lofaði þeim að forða sér sitt í hverja áttina. Minnis- stætt verður mér alltaf er einn af þremur bátum fór hreint inn á milli brota milli Þórshafnar og Stafness, svo við óttuðumst að hann mundi stranda, en kunnug- leiki hans forðaði slíku, en sjálf- sagt minnist liann þessa, ef hann les þessar línur, að öllu jöfnu er- um við bestu kunningjar þótt á stundum séum við búnir að marg bölva hvor öðrum. Nú — þetta var nú „útúrdúr" — við vorum að tala um land- helgi — og landhelgi skal það vera. Nú er hugmyndin að verða að staðreynd, að 200 mílur skal landhelgin vera. Við — sem erum gamlir og tor- tryggnir eins og gömlu refirnir, getum ekki séð að mögulegt sé að koma fastri skipan á þetta mál nema nýir menn komi til, — nýir menn, sem hafa óskorað vald til aðgerða, án þess að þurfa að sækja um heimildir hverju sinni til staðnaðra gamalmenna og sér- stakra pólitískra værðarsetu- manna, sem óttast atkvæðamissi og tap stólanna, sem þeir sitja í, ef þeir stjórna með járnhönsk- um réttlætisins í samræmi við þau lög er sett hafa verið. Fyrir nokkrum árum var talið, að vertíð byrjaði 2. febrúar (kyndilmessa) og fágætt var að sjá netabát á miðunum fyrir þann tíma og varla fyrr en í byrjun mars. Eftir því, sem skipin hafa stækkað og orðið fullkomnari, hefur örtröð netaveiðanna aukist við strendur landsins, einkum á svæðinu frá Skor á Breiðafirði, austur fyrir Homafjörð. Flestir hafa þó tekið upp net sín fyrir maílok, en hér fyrir Hafnalandi voru komin aftur net í sjó strax í ágúst sl. sumar. Þó hefur víst aldrei „tekið eins í hnúkana" eins og síðastliðið haust, 1974, því þá áttu margir net norðan við Reykjanes, úti í Röst, úti við „Eldey“ og úti á „Hólum“. Þessi starfsemi er höfð í frammi í svartasta skammdeginu, þegar veður eru sem válindust. Þessum 197

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.