Sjómannablaðið Víkingur

Volume

Sjómannablaðið Víkingur - 01.06.1975, Page 55

Sjómannablaðið Víkingur - 01.06.1975, Page 55
og svo .... Hefði hann undireins tekið afstöðu til þess, sem hann fann á sér, snúið skipinu í veðrið og dregið úr hraðanum........ Tómar spekúlasjónir. Skeð var skeð. „Balli“ var reyndar með skilju milli botntankanna, og dá- lítið var kannski hægt að rétta skipið með því að dæla sjó í stjórnborðshólfið. Annars . . . jú, það var aðeins um eitt að ræða: senda skipverja niður og láta þá moka korninu frá bakborða og yfir til stjórnborða, rétta skipið við með því móti. Moka, moka . . annars var það bara tímaspurs- mál þangað til slagsíðan yrði of mikil þar til skipið þyldi ekki lengur, og . . . . Þá fengi enginn framar fregnir af Baldjökli né áhöfn hans. Hallinn var þegar 25 gráður----og korn rann til, næst- um eins og vatn . . . Jón skipstjóri fór upp aftur, strauk korn og ryk af höndunum. Stýrimaðurinn og allir þeir, sem komið höfðu, þar með frívaktin, stóðu þama. — Jæja. — Einn neitar að fara niður, kallaði stýrimaður gegnum rok- ið, brá fyrir sig bakborðsfæti en rann samt eftir höllu dekkinu. — Neitar? — Já, skipstjóri Steinsson leit yfir hópinn. — Komið með mér inn í messann, kallaði hann. Fylltu tvötankinn stjórnborðs- meginn, stýrimaður, og komdu svo. Skipstjórinn settist, beið, stýri- maðurinn kom. Það varð þögn. Allir fundu hvernig öldurnar skullu á skipinu, liallann, hitt og annað rann niður á bakborða. tJt- um ljórann glórði í mastrið, sem sýndist halla sér að hafinu; væri litið út stjórnborðsmeginn, sást bara blýgrár himinn. — Á ég að skilja þetta svo að einhver neiti að hlýða skipun? sagði Jón Steinn. Enginn svar- aði, og hann leit yfir hópinn. — Jæja? — Ég læt ekki nappa mig eins og rottu í gildru! æpti maður frammi við dyr. VÍKINGUR — Þú skilur að þetta er upp- reisn um borð? Og hvaða afleið- ingar það hefur? — Eg fer ekki niður í lestina, gargaði maðurinn við dyrnar. Skjóttu mig heldur! Skipstjórinn leit snöggvast á stýrimanninn. Jón Steinn var þungur á svip og djúp hrukka milli augnanna. — Sjáið þið nú, sagði hann og talaði seint en fast. Ef við liggj- um svona um stund, þá rennur kornið yfir til bakborðs. Ef dall- inum hvolfir, drukknum við. í þessu veðri er vonlaust að koma út bj örgunarbátum. Þeir mundu líka sökkva eins og skot jafnvel þótt við kæmum þeim á flot. And- artak þagði hann. Við verðum að fara niður í lest og moka kominu yfir í stjórnborða. Ef það tekst þá höldum við lífi. Ef ekki . . . ? Það er allt og sumt. Neitar ein- hver ennþá? Þögn. — Jæja? — Ég vil það ekki, vil það ekki! Æpti röddin við dyrnar. Skipstjórinn reis á fætur, en mennimir viku frá honum, og maðurinn við dyrnar stóð allt í einu einn. — Skjóttu mig skipstjóri. Skjóttu mig! En ekki — þetta! — Gott og vel, sagði Jón Steinn allt í einu, og rétti úr sér. Þú tekur við skipinu, stýri- maður. Skrifaðu niður það, sem hér hefur gerst, en ekki í logg- bókina, heldur á laust blað. Ann- ar stýrimaður getur verið vottur, en náðu þessu öllu niður. Ég fer niður í lest og lempa. Þú skálkar lúguna á eftir mér. — Ætlarðu einn, skipstjóri? — Hvað annað? — En . . . skipstjóri . . . — Þetta er skipun, sagði Jón Steinn hvass í bragði Skilurðu það? — Já, skipstjóri. — Opnaðu lúguna og láttu senda þangað mat og vatn strax. Skipstjórinn gekk milli mann- anna og tók í hurðarhandfang- ið. — En, . . . en . . skipstjjóri . sagði þá einn mannanna, ákafur og hræddur. — Hvað var það? — En . . . við höfum ekki neit- að! Við höfum ekki neitað! Auð- vitað verðum við allir með, eða hvað, piltar? Enginn okkar hef- ur neitað, ha? — Nei, við komum allir vitan- lega! — Það koma allir með, skip- stjóri. Heldurðu að við vildum ekki . . . ég fann það, að minnsta kosti . . . Það var bara hann Ingi . sem . . sem Maðurinn blóð- roðnaði og varð niðurlútur. — Hann vildi læra . . . stúdera . . . hann. En hann var neyddur til þess að fara á sjóinn, sagði maðurinn lágmæltur . Hann . . . móðir hans var ekkja og gifti sig aftur, og svo . . . Hann leit upp . . . var vand- ræðalegur — Eg fer ekki . . . geri það ekki . . . sagði Ingi þvermóðsku- legur, hljómlausri röddu. Jón Steina, skipstjóri leit á mennina. — Ég biðst afsökunar, sagði hann lágt — en þetta var heimskulegt af mér — stýrimað- ur, mat og vatn fyrir sex menn. Lúguna verður að skálka yfir okkur. — En, skipstjóri, er ekki betra að skiptia um menn? Opna lúguna að minnsta kosti á klukku- tíma fresti eða svo, og sjá hvem- ig gengur? — Jú, það væri betra. En við getum ekki hætt á að opna lest- ina í þessu veðri. Þetta — verður eins og ég hefi sagt. Stýrimaðurinn gat ekkert ann- að en játað, og Jón Steinn, skip- stjóri, gekk út, klifraði yfir lest- arkarminn með ljósker og skófl- ur — hvarf. Fimm menn fóru þegjandi á eftir honum. Lestar- hlerarnir voru látnir á og lúgan skálkuð. Stormurinn æddi óstöðvandi. Jón Steinn mokaði komi. Stingur skóflunni djúpt, hendir af henni yfir á stjórnborða. Stingur skólfunni aftur á kaf kastar af henni. Mokar. Mokar. 207

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.