Sjómannablaðið Víkingur - 01.06.1975, Síða 61
því við komum og þangað til
skýrslan var prentuð, og líka hitt
að sumir okkar eru ekki meira
en í meðallagi vanir ritstörfum.
En af því að við höfum nú sjálf-
ir getað séð nokkra galla á skýrsl
unni, með tilhjálp og leiðbein-
ingu hins velviljaba landa okkar
herra 0. V. G., þá finnum vér
oss skylt að reyna til að bæta úr
þeim með nokkrum athugasemd-
um“.
Síðan kemur tæplega dálkur
um stærð síldarneta og um lax-
veiði, að því er „fluguaungla-
veiði“ snertir, en Odd hafði fýst
að fi’étta af henni.
Loks senda þeir Björgvinjar-
farar þrír, sem að sunnan fóru,
frá sér 4ra dálka viðbótar-
skýrslu, sem birtist 26. marz, en
til hinna tveggja þátttakendanna
voru engar kröfur gerðar. Er
skýrslan að meginefni tilvitnan-
ir í bókina „Norges Fiskerier"
eftir 0. Löberg. Einnig telja þeir
fram nokkur atriði, sem þeir
játa, að þeim hefði gleymzt að
nefna og reyna að bæta úr því.
Segja þeir loks, að ef ávextirnir
af ferð þeirra til Björgvinjar
eigi eingöngu að koma fram í
margbrotnum ritum og ræðum,
en þeir séu í alla staði óhæfir til
að gefa út slíkar ritgjörðir, þá
hafi mannvalið til ferðarinnar
ekki heppnazt sem skyldi. Þann-
ig tóku þeir í eitt skipti fyrir öll
af allan vafa um það, að meira
myndi ekki frá þem birtast um
för þeirra á fiski- og veiðarfæra-
sýninguna í Björgvin 1865.
Þess ber að geta, að Sumarliði
Sumarliðason hélt aftur á móti
sýningu á Isafirði á ýmsum mun
um, sem hann kom með hingað
úr ferðinni. Og þá skrifaði Haf-
liði Eyjólfsson einnig ítarlega
ferðasögu og lýsingu á sýning-
unni. En það var áhugi þeirra
sjálfra og framtak, sem mestu
máli réði um för þeirra á sýning-
una í Björgvin 1865, en ekki nein
„forgaungunefnd um samskota-
fé“, sem síðan auglýsti eftir þátt-
takendum.
Sveinn Ásgeirsson.
Sveinn Jónsson
Verkstœði: Breiðagerði 7 - Reykjavík.
Sími 82730 (2 línur).
FRYSTIVÉLAR - uppsetning og eftirlit.
íil orkusparnaðar það nýjastð:
°*/ .
\\V
+* 'ly O/.
■ XV
v%
^ '//
XX
Vv
»*s.
V
Höfum fyrirliggjandi varahluti í margar tegundir
kœlivéla. - Byggjum upp sjólfgœslukerfi, sniðin eftir
þörfum í afkastamöguleikum, í bjóðageymslur og
fiskilestar. - Byggjum laus frystikerfi fyrir rœkju
og skelfisk.
Höfum fyrirliggjandi reimdrifnar skiptivélar fyrir R-12,
22 og 502 kœlimiða, allt að ðO.OOO kg/cal
við — 10 til 25°C. — Getum ennfremur útvegað með
stuttum fyrirvara hraðfrystitœki í mörgum stœrðum.
LEITIÐ TÆKNILEGRA UPPLÝSINGA. - LEITIÐ TILBOÐA.
VÍKINGUR
213