Sjómannablaðið Víkingur - 01.06.1975, Blaðsíða 66
sinnum
Sjötíu sinnum í viku hefja þotur okkar sig til flugs í
áætlunarferö, samkvæmt sumaráætlun til 12 staöa
í Evrópu og Bandaríkjunum.
Þessi mikli feröafjöldi þýöir þaö, aö þú getur ákveðið
ferö til útlanda og farið nær fyrirvaralaust.
En þaö þarf talsvert til aö þetta sé mögulegt. Þaö
þarf traust starfsfólk og góöan flugvélakost.
Viö höfum hvort tveggja. Viö höfum 2 Boeing og
3 DC8 þotur, og 1600 starfsmenn, marga meö
langa og gifturíka reynslu aö baki, í þjónustu okkar,
Starfsfólk okkar hefur ekki aöeins aösetur á íslandi.
500 þeirra starfa á flugstöóvum og skrifstofum
okkar í 30 stórborgum erlendis.
Hlutverk þess er aö greiða götu þína erlendis.
Ætlir þú lengrá en leiöanet okkar nær, þá er ekki
þar meö sagt aö viö sleppum alveg af þér hendinni,
þá tekur feröaþjónusta okkar viö, og skipuleggur
framháldiö í samvinnu viö flest flugfélög heims, sem
stunda reglubundiö flug, og fjölda hótela.
Þegar þú flýgur meö vélum okkar, þar sem reyndir
og þjálfaöir flugmenn halda um stjórnvölinn, og þér
finnst aö þú sért aö ferðast á áhyggjulausan, þægi-
legan og öruggan hátt, þá veistu aö þaö er árangur
af samstarfi alls starfsfólks okkar, sem á einn eóa
annan hátt hefur lagt hönd á plóginn til þess aö svo
mætti verða.
FLUCFELAC LOFTLEIDIR
LSLANDS
Félög meö þjálfað starfslíð í þjónustu við þig