Sjómannablaðið Víkingur - 01.02.1977, Page 5
Með blýant og
blað á togara
Samband Bjarna við sjómenn
var náið. Hann var með þeim á sjó
og flutti fyrirlestra fyrir sjómenn á
fyrstu árum aldarinnar. Margir
skipstjórar gerðu fyrir hann sér-
stakar athuganir, þar á meðal
skútuskipstjórar, einsog Geir heit-
inn Sigurðsson, og með þessum
frumstæða hætti safnaði Bjarni
saman fyrstu brotunum að þekk-
ingu manna á dýralifi og náttúru
hafsins umhverfis landið.
Hann ferðaðist um landið,
kvarnaði þorsk og ýsu víða og afl-
aði sér þannig upplýsinga um
vaxtarhraða og viðgang þessara
fiska.
— Ég veit ekki hvernig menn
litu á þetta þá, hafa sjálfsagt
margir litið á það sem hálfgert dútl
að vera að þvælast með blað og
blýant um borð í togara og vera að
skera upp fiska í nafni vísindanna.
En hitt er þó ljóst, að þeir sem
hittu þennan merka vísindamann,
heilluðust af áhuga hans og starfi
og má hiklaust segja að hann afli
vísindum sínum stuðnings og
skilnings meðal þjóðarinnar, sem
ekki þekkti þessi fræði, eða gildi
þeirra fyrir landið.
Þetta er meðal annars ljóst af
því að allir íslendingar tala um
Bjarna Sæmundsson með mikilli
virðingu.
Sem áður sagði gerðist Bjarni
Sæmundsson kennari við
Menntaskólann, eða Lærða skól-
ann, þegar hann kom heim frá
námi. Seinustu ár æfi sinnar átti
hann þess þó kost að sinna ein-
vörðungu vísindastörfum.
Það fer ekki milli mála að dr.
Bjarni Sæmundsson er einn merk-
asti náttúrufræðingurinn, sem
rannsakar Atlantshafið á sínum
tíma og hann er meðal brautryðj-
endanna.
Árni Friðriksson og
hagnýtar fiskirannsóknir
Þó verður að gera mun á rann-
sóknum hans og því sem við getum
nefnt nútíma fiskirannsóknir.
Gögn dr. Bjarna og niðurstöður
voru byggð á miklu færri einstakl-
0 "
Hafrannsóknaskipin við bryggju í Reykjavík. Þau eru, talið frá vinstri: DRÖFN,
HAFÞÓR, ÁRNI FRIÐRIKSSON og BJARNI SÆMUNDSSON.
V I K I N G U R