Sjómannablaðið Víkingur - 01.02.1977, Blaðsíða 11
Dr. Hermann Einarss., fiskifr.
maður þetta fyrst erlendis og þegar
ég tók við 1953 var það eiginlega
alveg óundirbúið.
Við Hermann Einarsson kom-
um, sem áður sagði, heim frá námi
eftir stríðið. Hermann lauk prófi í
dýrafræði frá háskólanum í
Kaupmannahöfn árið 1941, en var
búsettur i Kaupmannahöfn til
ársins 1945 og vann þá að dokt-
orsritgerð um ljósátu, sem talið er
eitt merkasta rit í heimi um ljós-
átu.
Dr. Hermann Einarsson var
mjög gáfaður og skemmtilegur
maður og mikilsvert að fá hann til
starfa við íslenskar fiskirannsóknir.
Ég lærði hinsvegar fiskifræði við
Oslóarháskóla og lauk prófi árið
1946. Ég tók þegar til starfa við
Fiskideildina og tók við þorsk-
rannsóknunum, enda hafði nám
mitt að nokkru miðast við það.
Starfaði ég við þær rannsóknir, eða
þorskinn þar til ég lét þær af hendi
við Sigfús A. Schopka, fiskifræð-
ing. Ég missti sumsé glæpinn
vegna anna við önnur verkefni, og
má segja að það sé eðlilegra að sá
sem stjórna á heilli stofnun, sé ekki
með önnur mikilvæg verkefni, sem
hann hefur svo í raun og veru ekki
tíma til þess að annast. Þau vís-
indastörf sem ég stunda eru þó á-
fram að mestu bundin við þorsk-
inn og hefi ég af þeim störfum
mikla ánægju.
Ástæðan fyrir því að ég tók við
þorskinum á sínum tíma var sú að
í Noregi voru þorskrannsóknir á
mjög háu stigi. Kennari var
Rollessen, sem var forstjóri norsku
hafrannsóknastofnunarinnar, en
hann er nýlátinn. Hann lagði á-
kaflega merkar nýjungar fram í
þorskrannsóknir. Þessar nýjungar
innleiddi ég svo hér og byggðum
við störf okkar á þeim hér fyrstu
áratugina að miklu leyti.
Þetta varð til þess að Árni
Friðriksson fól mér þorskrann-
sóknirnar, en Hermanni Einars-
syni ætlaði hann sjórannsóknir, en
féll ekki við það og dr. Unnsteinn
Stefánsson fór síðan í þær, en
Hermann í síldarrannsóknir, þar
sem hann einbeitti sér mest að
Suðurlandssildinni, en Árni
Friðriksson var samt áfram. Þeir
fóru dálítið furðulega að, skiptu
bara við Reykjanes og „riktu“ svo
hver á sínu svæði.
Dr. Hermann Einarsson vann
merkilegt rannsóknarstarf á sum-
argotssíld og vorgotssíld við ís-
land, en síðan fór hann til útlanda
og vann merkilegt starf i Suð-
ur-Ameríku við að skipuleggja
perúanskar haf- og fiskirannsóknir
og ennfremur vann hann við
strauma- og dýralífsrannsóknir.
Þessi störf vann dr. Hermann
Einarsson á vegum Sameinuðu
þjóðanna og naut hann mikillar
virðingar. Starfsævi hans varð því
miður alltof skömm. Dr. Hermann
Einarsson lést af slysförum fyrir
nokkrum árum.
Dr. Hermann Einarsson var
mjög merkilegur visindamaður.
Eftir hann liggja fjölmörg rit og
11
ritgerðir um vísindaleg efni og
annað, en hann var ritfær maður
vel. Ritstjóri Náttúrufræðingsins
var hann um tíma.
Athyglin beinist að
hafrannsóknum
Þegar ég tók við störfum sem
forstjóri fiskideildarinnar af Árna
Friðrikssyni voru viðhorfin til haf-
og fiskirannsókna tekin að breyt-
ast, og rannsóknirnar höfðu tengst
atvinnulifinu nánar en verið hafði.
Við vorum þrir sérfræðingarnir,
Hermann Einarsson, Unnsteinn
Stefánsson og ég, og við höfðum
nokkra aðstoðarmenn. Fiskirann-
sóknaskip var ekkert, en við feng-
um að fljóta með varðskipinu Ægi
fyrir náð og miskunn og stöku
sinnum fengum við önnur skip,
skamman tíma i einu. Oftast
varðskipin ÆGI og MARÍU
JÚLlU.
BJARNI SÆMUNDSSON er að láta úr
höfn í loðnurannsóknir og loðnuleit.
Hjáimar Vilhjálmsson, fiskifræðingur,
einn reyndasti fiskileitarmaður okkar
fær sér kaffisopa í brúnni meðan
þess er beðið að skipið leysi festar.
VIKINGUR