Sjómannablaðið Víkingur - 01.02.1977, Síða 36
stofninn mikla sumarveiði fyrir
Norðurlandi, eyðist ekki af því,
sem af er tekið. Semsé verður magn
loðnunnar ekki því mun minna,
sem á miðin kemur að vetrinum.
Það skyldi þó ekki geta komið fyr-
ir, og þá um leið yrði fiskigengd
minni á vetrarmiðin. Það verður
að virða það til betri vegar að hér
er leikmaður að slá fram spurn-
ingum. Mér datt í hug að hag-
stæðara væri að fiskur hrygndi áð-
ur en hann væri drepinn, þar með
eykur hann þó kyn sitt. Þess vegna
sýnist óeðlilegt að fiskurinn skuli
veiddur þegar hann er á leiðinni
inná hrygningarsvæðið, til að auka
kyn sitt, t.d. þorskurinn. Ekki yrði
talið búmannslegt að drepa ærnar
komnar að burði, hætt er við að
útkoman yrði þá eitthvað skrítin.
Er ekki lögmálið eitt og hið sama
fyrir þessar lífverur, mér er spurn?
Nei við skuium ekki hafa hrak-
spár í huga um þessi áramót, því
nú er hátíð í hugum allra sannra
íslendinga, hátíð yfir unnum sigri í
stóru máli og vandasömu, ,,land-
helgismálinu“. Eigi þeir heiður og
þökk, sem að þeim sigri unnu, ó-
deigir og öruggir, stöndum allir,
sem einn íslendingar góðir, vörð
um þann rétt, sem við höfum
fengið i okkar hlut.
Kristján Þorláksson skipstj. á Hval 4.
Engin erlend skip inná okkar
umráðasvæði til fiskveiða, hvorki
nú, né framvegis. Sýrium dáð og
drengskap til að bæta fiskimiðin,
ala upp nýja stofna nytjafiska,
tryggjum það að aldrei verði
gengið of nærri stofninum svo sem
nú hefur gerst. Látum það okkur
til varnaðar verða. Megi íslenska
þjóðin búa við það lán um langa
framtíð, að eiga fengsæla og far-
sæla menn í fiskimannastétt, sem
leggja metnað sinn í það að veiða
sjálfir, allt það fiskimagn, sem
stofninn þolir með góðu að missa,
á hverri tíð. Þá geta íslendingar
búið við góðan hag og hamingju
um alla framtíð. Ég bið þess að svo
megi verða um leið og ég óska sjó-
mönnum og öllum íslendingum
árs og friðar, heill og hamingja
fylgi vorri þjóð.
mmmM
Ingólfur Þórðarson við byssuna á Hval IX
36
V í K I N G U R