Sjómannablaðið Víkingur - 01.02.1977, Blaðsíða 37
Bifreiðainnflytjendur og fleiri kaupa bílaskip.
Dálítið stormasamt hefur verið í
vetur í flutningamálum þjóðar-
innar. Menn kvarta undan háum
farmgjöldum og er það von, og nú
hafa bílainnflytjendur (nokkrir)
tekið sig saman og hyggjast festa
kaup á bílferju, sem annast á
bflaflutninga fyrir bflaumboðin,
og fleiri verkefni munu skipinu
ætluð. Ákveðið skip, sem er til
sölu, er talið henta Islendingum
og þegar verið er að ganga frá
þessu tölublaði, er einmitt verið að
halda stofnfund í hinu nýja
skipafélagi.
Siglingar
íslendinga
gamaldags?
Siglingar íslendinga eru í raun
og veru mjög sérstæðar. Ólíkar
flestu, sem þekkist. Kaupförin
verða að sigla um Norður-Atlants-
haf, eina örðugustu siglingaleið í
heimi, ef ekki þá verstu. Auk þess
þurfa skipin að koma á margar
frumstæðar hafnir, svo að vinnu-
álag er mikið á skipshafnirnar —
og skipin. Takmarkaðir flutningar
eru aðra leiðina og skipin eru yfir-
leitt lestuð mörgum tegundum af
vöruvSekkjavara,járn,stykkjavara,
bílar og landbúnaðarvélar á þil-
fari.
Við nánari athugun á þessum
málum kemur margt í ljós.
íslenzku kaupskipin virðast vera
að minnka, en það er að sögn gert
til þess að geta haft tíðari ferðir
milli landa, sem er auðvitað hent-
ugt fyrir verzlunarstéttina. Á hinn
bóginn er það dýrara fyrir lands-
menn. Gámafrakt, skipulögð eða
roll on/roll off flutningar eru, eða
hafa ekki verið skipulagðir, þótt
gámar séu að sjálfsögðu notaðir
eftir því sem unnt er. Sérsmíðuð
gámaskip höfum við ekki hér í
förum og ekki neinar bílferjur
heldur, sem eru þó taldar ómiss-
andi svo að segja hvar sem er,
nema að færeyska skipið
TJALDUR hefur flutt farþega og
bíla þeirra milli fslands og annarra
landa.
Sjómannablaðið VfKINGUR
hefur ritað um þetta efni, „vega-
sambandið“ sem þarf að koma á
milli landa og virðist nú sem það
mál sé að komast í höfn, a.m.k. að
nokkru leyti.
Hér að framan var sagt frá bíl-
ferjunni, og það er haft fyrir satt að
Eimskipafélagið muni innan
skamms bjóða út sex ný skip með
skutbrú; 15 metra langri aksturs-
brú, sem gefur aukið svigrúm til
Roll on/roll off flutninga, en auk
þess verður bílaflutningur auð-
veldari en áður var. Bílar geta ekið
um borð í skipið í hvaða höfn sem
er. Bílferjulægi, flotbryggja og sér-
gerð hafnarmannvirki eru óþörf,
þegar skutbrú er notuð, nema
hvað viðlegupláss verður auðvitað
að leyfa skotbrúna.
Það ber að fagna þessum tíð-
indum, eins og raunar öllum
VfKINGUR
37