Sjómannablaðið Víkingur - 01.05.1979, Qupperneq 15
Maður sleppír ekkí róðri
Kristján Einarsson: Góður er kaffisopinn.
Það er jafndægri á vori 1979,
þegar ég hitti Kristján Einarsson,
útgerðarmann og formann á
Skúmi RE 90 heima hjá honum á
Efstahjalla 9 í Kópavogi.
— Þú varst bóndi Stjáni, áður
en þú fórst að gera út.
— Ég var sveitamaður, bjó á
Dunki í Hörðudal í Dalasýslu.
— Hvað kom til að þú fórst að
stunda sjóinn?
— Ég var nú búinn að stunda
sjóinn frá því ég var strákur. Ég
var mikið í alls konar veiði-
mennsku, var grenjaskytta og
stundaði rjúpu fyrir vestan, en reri
á vertíðarbátum fyrir sunnan á
veturna. Ég var allur í veiði. En
svo varð ég svo hrifinn af skakinu.
Ég byrjaði á því á stórum bát 1965.
Það var Flosi úr Reykjavík, sem
nú heitir Askur. Mér líkaði þetta
svo vel að ég vildi endilega eignast
bát. Ári síðar keypti ég mér trillu,
Fram. Hún var 7 tonn og ég átti
hana í 5 ár.
— Hvað er Skúmurinn gamall?
— atta ára. Hann var byggður
fyrir mig 1971 hjá Jóa Gísla í
Hafnarfirði. Ég hef róið honum
frá Sandgerði aðallega.
— Þú hefur verið orðinn vel
fullorðinn þegar þú byrjaðir þessa
útgerð.
— Ég var kominn yfir fertugt.
Þetta var erfitt líf á Fram. Það var
barist um á hæl og hnakka.
— Var sjósóknin svona erfið?
— Hann var valtur í sjó og lét
illa, en feikna sjóbátur í vondum
veðrum.
— Þekktirðu til miða, þegar þú
varst að byrja?
— Ég var alveg ókunnugur. Ég
fékk mann til að vera með bátinn
annað sumarið sem ég átti hann
— fyrsta sumarið var ég með hann
fyrir vestan. Þetta var aflamaður,
Jón Ásbjörnsson. Annars lærði
maður þetta smám saman af öðr-
um, að þekkja miðin og hátterni
fisksins. Bátarnir eru oft á sömu
miðum. Það lærir hver af öðrum.
Maður er alltaf að læra, reka sig á
eitthvað nýtt. Það þarf reynslu í
þetta. Það eru t.d. ekki nema ör-
fáir menn sem þekkja miðin úti á
Brotinu. Ég hugsa að við Svanur á
Bigganum þekkjum þau best.
— Hvenær byrjarðu að róa að
vorinu?
— Það er upp og ofan, yfirleitt
snemma í mars. Og svo er haldið
áfram fram á haust, oftast út
október. Ég hef einu sinni haldið
út langt fram í nóvember.
— Og svo eigið þið frí?
— Já, en við eigendurnir þurf-
um að vinna í bátunum, klassa þá
upp. Ég skipti t.d. um vél í
Skúmnum í vetur. Ég er með
feikilega mektuga vél í honum
núna, Volvo pentu, 106 hestöfl.
Þetta er ágætis bátur, aldrei komið
neitt alvarlegt fyrir á honum.
— Þú sækir nokkuð fast.
— Maður sleppir ekki róðri, ef
maður getur. En maður missir
stundum útskot, af því maður býr
VÍKINGUR
15