Sjómannablaðið Víkingur - 01.05.1979, Page 30
í borðsalnum. Hann hafði brotið
eitthvað af sér; ég vissi ekki hvað.
„Þú hefur verið mér góður,“
sagði ég í barnslegu sakleysi.
Hann klökknaði. „Við erum
báðir lausaleikskrakkar.“ Hann
þagnaði snögglega og flýtti sér út.
Þetta var upphafið af vináttu
okkar. Hann talaði fátt, var jafn
fálátur sem fyrr og blandaði ekki
geði við skipshöfnina. Það litla
sem hann talaði, það talaði hann
við mig.
Fleiri menn flykkjast fram á
sjónarsviðið. Þarna er Hlölli í
skærri birtunni frá lampanum í
loftinu á borðsalnum. Ég sé skýrt
fyrir mér andlit hans og hið
ógleymanlega bros. Þegar hann
brosir myndast djúpar hrukkur
kringum augun, og það er ung-
barnsásjóna sem blasir við manni,
áhyggjulaus og heillandi. Silki-
mjúkt ljóst hárið fellur slétt og
þunnt aftur með eyrunum nema
einn óstýrilátur hártoppur, sem rís
beint upp úr hvirflinum og dillar
fjörlega í hvert sinn er mótoristinn
hlær. Hann er grannvaxinn og út-
limalangur. Kringum hann í
borðsalnum sitja raðir manna og
flöktandi skært ljósið leikur um
andlitin. Kvöldið hefur haldið
innreið sína og með því einustu
töfrar sjómennskunnar fyrir utan
heimkomu, félagslífið: samræður
fléttaðar skrýtlum og stuttum
sögum, hvort tveggja mótað af
þeirri frásagnarlist sem langvar-
andi einangrun og gnótt ævin-
týralegs efniviðar hefur þroskað í
sál sjómannsins allt frá því sigl-
ingar hófust langt aftur í grárri
forneskju. Ég hlusta bergnuminn
og lifi í huganum hin furðulegustu
ævintýri með þeim víðförlu í
þessum káta hóp. í einni andránni
hleyp ég á eftir hlæjandi Eski-
móastúlku upp jökla Grænlands
eða daðra við kynblending í
Portúgal. Ég upplifi líka glímu-
skjálfta Hlölla, er hann tekur
glæpamann fjölbragðaglímutök-
um í hóruhúsi í Marokkó. Og ég
heyri líka að Hlölli, sem ráðið
hefur sig sem mótorista á skipið,
hefur ekki hundsvit á vélum. Hins
vegar hefur hann fengizt við
ýmislegt annað miklu skemmti-
legra, til dæmis sveiflað montpriki
og klæðzt hvítum buxum og sól-
hjálmi í Tokkópillu og Valparæsó.
En vélar! Hann vísar slíku tali á
bug með glæsilegri handsveiflu og
fer að tala um það, þegar hann tók
greifafrúna í misgripum fyrir
gleðikonu á Champs Élysées.
Mótoristinn hlær og hártoppurinn
dillar fjörlega í flöktandi ljósi
lampans.
Sól er í hádegisstað og logheitir
geislar hennar hér við heim-
skautsbaug steypast yfir þúsund
EMGINE R.P.M. gj
fíétt ofía á hverjum stað
eykur afköst og endingu ''
, OLIUFELAGIÐ HF
SKIPAÞJÓNUSTA
SuÓurlandsbraut18 Reykjavík Sími81100
VÍKINGUR