Sjómannablaðið Víkingur - 01.05.1979, Blaðsíða 35
inaverkfallið
neitaði algerlega að ræða helstu
kjarakröfur farmanna.
Þegar þetta er ritað, 3. maí, hafa
tveir árangurslausir sáttafundir
verið haldnir. Farskipin eru að
koma heim og stöðvast hvert í
annars kjölfar, og senn líður að því
að áhrifa verkfallsins fer að gæta,
en farmannaverkfall er þess eðlis
að æðilangur tími líður frá því
verkfall hefst þangað til að fer að
hafa veruleg áhrif á þjóðlífið. Hér
er því engu hægt að spá um hversu
langt eða erfitt þetta verkfall
verður, eða hver verður árangur
þess í næstu samningum, en Vík-
ingurinn óskar farmönnum heilla í
baráttunni og farsællar lausnar.
Nei, það eru engir samningar í nánd. Menn gerast þungir á brún. Frá vinstri: Ingólfur
Ingólfsson, Þórður Sveinbjörnsson, Ásgeir Sigurðsson, skipstjóri, Kristján Hafliðason,
vélstjóri, Gylfi Geirsson, loftskeytamaður, Jón Guðmundsson, vélstjóri, Hlöðver
Einarsson og Ingólfur Stefánsson.
Kristján Hafliðason: Reiknum þetta út enn einu sinni.
Guðlaugur Gíslason, framkvæmdastjóri
Stýrimannafélags íslands:Og svo er bara
að bíða rólegur
VÍKINGUR
35