Sjómannablaðið Víkingur - 01.06.1981, Blaðsíða 38
Þeir stungu í hvalina með löngum stingum.
ORUGG HANDTOK MEÐ
SCXTÍU 00 SEX NOMMJR
VINYL GLÓFUM
SJÓKLÆÐAGERÐIN HF
Skúlagötu 51 - Reykjavík - Sími 1-15-20
SEXTIU OG SEX
NORÐUR
VINYL GLÓFINN
• MEÐ HRJÚFU YFIRBORÐI
• ÖRUGG HANDFESTA
• FÖÐRAÐIR MEÐ 1 00% ÝFÐU
BÖMULLAREFNI
• ROTVARÐIR (SANITIZED)
• STERKIR EN MJÚKIR
ÍSLENSK FRAMLEHDSLA
draup úr hári þeirra og þeir voru
skjálfandi úr kulda. Maður í stafni
slippbátsins kastaði hamar stððugt
í sjóinn. Ég mundaði myndavél-
ina. Grindin fór að koma tíðar
upp, farinn að þreytast. Hryggur-
inn bognaði er hvalirnir létu sig
líða niður og sporðblaðið lá þvert.
Hinir bátarnir nálguðust og mér
skildist að báðir flokkamir væru
komnir saman. Bátamir röðuðu
sér í langa línu og var nú engin
undankomuleið fyrir grindina. Ég
hef aldrei séð slíkan bátafjölda á
sjó, margir voru í hverjum svo
þetta líktist skrúðgöngu. Stundum
reyndu hvalirnir að kafa undir
bátana en þá var kastað allt hvað
af tók. Ég kastaði grjóti í bandi og
gusaðist framan í mig, og ég sem
ætlaði að vera með hvölunum!
Steinninn mátti ekki rekst í báts-
skrokkinn er ég hífði hann inn.
Bátur formannsins var með fær-
eyska fánann í skut, rauður kross
með bláum kanti á hvítum grunni.
Formaðurinn kallaði í lúður og
bað menn að fara ekki of nálægt.
Hægt og sígandi var hvalahjörðin
rekin í átta að lítilli vík þar sem á
rann til sjávar.
Margir bátar voru komnir fram
fyrir formanninn, orðið þétt á
milli og litlu munaði að yrðu
árekstrar. Við drógum okkur aftur
úr, skipstjórinn sagðist ekki vilja
taka þátt í drápinu. Ég hélt hann
vildi ekki fá blóð á fína bátinn.
Formaðurinn bað menn að stinga
ekki of fljótt, en allt í einu sást
gusugangur í sandfjörunni. Hjart-
að í mér fór að slá hratt og ég bað
um að vera settur í land.
Ég hljóp eins og fætur toguðu á
steinum í fjörunni, hélt um
myndavélina svo hún dinglaði
ekki. Allt var morandi af fólki,
stóð á steinum og í barattri hlíð. Er
ég kom í sandfjöruna, lafmóður og
titrandi í hnjáliðunum, var sjórinn
litaður blóði og gusaðist hátt í loft
frá sporðum hvala sem verið var
að stinga. Ég byrjaði að taka
38
VÍKINGUR