Sjómannablaðið Víkingur

Volume

Sjómannablaðið Víkingur - 01.10.1982, Page 17

Sjómannablaðið Víkingur - 01.10.1982, Page 17
nokkuð um fræðslu og það er mín skoðun, að fræðsla um íslenzka atvinnuvegi eigi skilyrðislaust að vera í grunnskólunum. Þetta má gera á þrennan hátt. í fyrsta lagi má nefna að í neðri bekkjum grunnskólanna er fag sem nefnist átthagafræði og þar er tilvalið að fjalla um atvinnumál, ekki síst sjávarútvegsmál. í öðru lagi má bæta efni sem þessu inn í náms- greinar eins og samfélagsfræði og í þriðja lagi má benda á að í efri bekkjum grunnskólanna er náms- grein sem heitir starfsfræðsla og það er bókstaflega ætlast til þess, að fræðsla um sjávarútveg sé þar viðhöfð. Það hefur verið einhver viðleitni í þessa átt, en hefur gengið alltof skammt, sennilega sökum þess að viðkomandi kenn- arar þekkja atvinnuvegina ekki nægilega vel. Það vantar kennslu- bækur, einhverjar kennslubækur hafa þó verið skrifaðar, meðal annars hefur Stefán Ólafur Jóns- son gert það. Engu að síður er það nánast til skammar fyrir þjóðfélag eins og ísland að vera ekki með kennslu á þessu sviði í skólunum. Um framhaldsskólana gildir nokkru öðru máli. Það eru til sér- skólar sem fjalla um fiskvinnslu og meðferð á fiski, en í hinum al- mennu framhaldsskólum, eins og menntaskólum og fjölbrautar- skólunum mætti gera meira átak í fræðslu á þessu sviði. Hver hefur fylgst með fiskimjölsvinnslunni? I.I.: Það veitir ekki af að auka fræðslustarfsemi á sviði sjávarút- vegsins og það er furðulegt hve lítið er um almenna fræðslu varð- andi fiskveiðar og vinnslu, þar sem við Iifum nú að mestu á því að veiða fisk og framleiða fiskaf- urðir. Þá komum við að því sem Jónas hnykkti á, en það er þáttur hvers aðila í eftirlitinu. Við getum sagt að öllu sé sæmilega borgið, en eftirlit verður að vera með fram- leiðslunni, á öllum stigum, allt frá því að varan kemur um borð og þar til hún er afhent. Sumum sýnist, að efla þurfi Framleiðslueftirlitið þessa opin- beru eftirlitsstofnun og vandinn sé ef til vill mestur vegna þess, að stofnunin hafi ekki á að skipa nógu miklum mannafla til að annast éftirlitið. Vafalaust má rökstyðja að svo sé. En þá er eins og Jónas nefndi, og fleiri hafa nefnt, að möguleiki er jafnframt á því að þróa og bæta eftirlitsstarf- semi framleiðendanna sjálfra. Það sýnist mér til dæmis hafa tekist allvel hjá Sölumiðstöð hraðfrysti- húsanna og hjá Sjávarafurðadeild Sambandsins, en viðlíka hefur ekki orðið í öðrum vinnslugrein- um. Ef við tökum sem dæmi fiskimjölsiðnaðinn, sem hefur verið mjög stór þáttur í okkar framleiðslu á undanförnum árum, þá má spyrja hvar eftirlitið með þeirri vinnslu sé? Hefur nokkur orðið var við, að það sé hjá Framleiðslueftirlitinu? Eina eftir- litið þar hefur verið hjá Rann- sóknarstofnun fiskiðnaðarins. Menn gætu spurt, hvers vegna hefur Framleiðslueftirlitið ekki komið meira nálægt þessari fram- leiðslu, það þarf að fylgjast með þessari framleiðslu ekki síður en annarri. En hvað er æskilegt? Á að efla Framleiðslueftirlitið, kannski tvöfalda eða tífalda mannafla þess eða á að efla innra eftirlit hjá framleiðendum sjálfum og sam- tökum þeirra? Þá kemur aftur að því að sumt af þessari framleiðslu er ekki bundin í samtökum með sama hætti og frystingin og salt- fiskverkunin. Má þar nefna skreiðarverkunina. Þar getur hver •verið þar sem honum sýnist og er miklu minna félagslegt skipulag á þeirri framleiðslu enda þótt hún tengist framleiðendum annarra greina og allt gangi þetta dálítið hvað af öðru. Hvað varðar eftirlit með fram- leiðslunni, þá sýnist mér að full ástæða sé til að íhuga rækilega hvort ekki beri að leggja meiri áherslu á innra eftirlit framleiðsl- unnar og hún beri ábyrgð í aukn- um mæli. Samtökin sem slík komi þar ríkulega inní. Síður á að tí- falda umfang hins opinbera Framleiðslueftirlits, en auðvitað þarf það að vera áfram inn í myndinni. í því sambandi hefur mér dottið í hug hlutverk Rann- sóknarstofnunar fiskiðnaðarins, VÍKINGUR 17

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.