Sjómannablaðið Víkingur - 01.10.1982, Qupperneq 20
Halldór: „Bráðnauðsynlegt að togararnir geti stundað aðrar veiðar en grálúðuveiðar á
vorin.“
skiptir ekki máli hvort við ræðum
um ferskfiskmat, freðfiskmat,
saltfiskmat eða skreiðarmat.
Þarna vantar alla samræmingu og
fer það ekki á milli mála.
Ingólfur Ingólfsson gerði lítið
úr þessari samræmingu sem ég tel
að þurfi að vera, en svo lengi sem
við ræðum um fiskmat á öllum
sviðum, þá er lágmarkskrafa að
samræming í mati sé í lagi. Ef
samræmingin er ekki fyrir hendi
er allt eins gott að sleppa matinu.
Ósamræmið á milli staða er
ófyrirgefanlegt og það var einn af
þeim þáttum sem ég var með í
huga og sagði að mér hafi ekki
fundist þessi stofnun, sem er
Framleiðslueftirlitið, standa sig
nægilega vel.
í framhaldi af þessu mætti síð-
an ræða við forsvarsmenn Fram-
leiðslueftirlitsins og ég tek undir
það sem Jónas sagði um Rann-
sóknarstofnun fiskiðnaðarins.
Ef það mál sem við erum nú að
ræða um, er dregið saman, þá
finnst mér við vera allir á sama
báti. En ég held að til þess að
gæðin verði bætt verulega þá
þurfum við að fá betra hugarfar
hjá öllum sem við þessa fram-
leiðslu vinna.
H.E.: Varðandi Framleiðslu-
eftirlitið vil ég aðeins taka fram að
ég skrifaði í okt. 1980, ásamt Ing-
ólfi Ingólfssyni og fleirum, undir
nefndarálit um breytt skipulag
Framleiðslueftirlitsins.
Við sem hér sitjum erum trú-
lega sammála um það að forsenda
þess að við höldum uppi velmeg-
un á íslandi sé að sjávarútvegur
verði áfram öflugur og heilbrigð-
ur. Okkur er öllum annt um að
viðhalda þjóðlífi eins og við höf-
um því og að auka kaupgetu
landsmanna. Forsenda þess að
það megi takast er m.a. að við
höldum áfram að selja úr landi
góðar fiskafurðir. Til þess þurfum
við að hafa gott, ferskt hráefni. Ef
okkur tekst að standa okkur vel í
harðri samkeppni við sterka
keppinauta um vandláta kaup-
endur þurfum við ekki að óttast
um framtíð íslensks sjávarútvegs.
H.R.: Ég er fullviss um að það
mun ekki standa á íslenzkum sjó-
mönnum að gera sem þeir geta til
þess að bæta hráefnið enn frekar
til þess að það komi sem ferskast
að landi.
þessum umræðum að taka beina
afstöðu til Framleiðslueftirlitsins.
Þó vil ég gjarnan koma því á
framfæri við alþljóð, að ég er ekki
nógu ánægður með Framleiðslu-
eftirlitið og hvernig það er rekið í
dag. Þess vegna hef ég lagt til að
starfsemi stofnunarinnar verði
ekki aukin, en við og þá á ég við
saltfiskframleiðendur sæjum
meira en nú um mat á okkar
framleiðslu. Eins og kom fram hjá
fulltrúum sjómannasamtakanna
hér áðan, þá finnst mér það vanti
samræmingu í fiskmatið. Það er
sama hvaða þáttur er tekinn og
Starfsemi Framleiðslueftirlitsins
verði ekki aukin
Þ.J.: Ég verð að játa það, að ég
hef frekar veigrað mér við því í
Útgerðarmenn — vélstjórar.
Önnumst allar raflagnir og viðgerðir í bátum, skipum og verk-
smiðjum. Áratuga þjónusta viö íslenskan sjávarútveg tryggir
reynslu og öryggi frá sérþjálfuðu starfsfólki.
20
VÍKINGUR