Sjómannablaðið Víkingur

Årgang

Sjómannablaðið Víkingur - 01.10.1982, Side 26

Sjómannablaðið Víkingur - 01.10.1982, Side 26
í miðjum reyksalnum tróndi þessi arinn og fyrir ofan hann, mynd af Ingiríði dana- drottningu sem gaf skipinu nafn. Eflaust hafa mörg spakmælin verið sögð í þessum djúpu stóluin á siglingum með þessu gamla virðulega skipi. 'I'il að farþegum gæti liðið vel, var nauðsynlegt að liafa góðar þernur. halda. Af því við systurnar vorum saman í klefa, vöknuðum við alltaf báðar þó nóg væri að önnur vaknaði. Á nýju skipunum breytt- ist starfssviðið líka þannig að við sáum bæði um að annast farþega, skipta á rúmum o.þ.h. og gefa mat í þrjá borðsali, borðsal farþega og borðsal háseta sem eru á sömu hæð og eldhúsið og borðsal yfir- manna sem er á hæðinni fyrir of- an. Þetta útheimti náttúrulega heilmikil hlaup. Þess utan sáum við um uppvaskið og þrifin á nær öllu skipinu. Oft var ekki pláss fyrir okkur til að matast svo við lifðum á kaffi og sígarettum. Fyrstu árin var alltaf gefið nætur- kaffi, klukkan þijú á nóttunni, fyrir utan hina sex matar- og kaffitímana svo þegar við bættist umönnun farþega á hvaða tíma sólarhrings sem var, gat vinnan oft náð yfir allan sólarhringinn. — Þið hafið auðvitað unnið öll þessi verk án þess að mögla? — Já, maður gerði það, kan- nske má kalla þetta góðsemi. En maður steinlá þegar maður kom heim. Við vorum vanar erfiðri vinnu í Mjólkursamsölunni.“ Gunna brosir svo gulu augun hennar hverfa nær alveg. — Þið hafið þurft að annast sjúklinga líka ef þeir komu um borð? spyr ég. — Maður reyndi að gera sitt besta eins og maður komst yfir, segir Gunna og þar við situr. Það var t.d. oft ansi mikið að gera meðan á Vestmannaeyjagosinu stóð. Þá fórum við 23 ferðir út í Eyjar að ná í fólk og flytja dót upp á land. — Þetta var verst fyrstu tvö til þrjú árin eftir að Hekla kom síðan fór farþegum að fækka með breyttum samgöngum. Seinna var næturkaffið líka tekið af svo við fengum meiri svefn. Samstarfið um borð var alltaf með miklum ágætum, kokkarnir 26 sem við unnum með voru prýðis- menn, bæði á Heklu og Esju. Maður hefði ekki haldið þetta út svo lengi ef ekki hefði ríkt gott andrúmsloft meðal skipverjanna. Eignuðst hús án þess að taka víxil. — Hvað gerðuð þið í sumarfrí- um? — Ég leysti nokkrum sinnum af hjá Eimskip í fríunum, fyrst á Selfossi 1960 þá var siglt á Ame- ríku og síðan til Dublin og Ame- ríku 1961. 1968 fór ég tvær ferðir með Reykjafossi því Esjan var í klössun þá fór systir mín með Brúarfossi til Ameríku. Eftir að Esjan var seld, vorum við beðnar að koma á Lagarfoss og sigldum u.þ.b. tvo túra en þá var Sigga skilin eftir í Kaupmannahöfn með botlangakast. Ég hef alltaf verið hraust sem betur fer, og lítið þurft að vera í landi vegna veikinda. Það var mikil tilbreyting að sigla til útlanda. — Tókuð þið ykkur ekki líka sumarfrí í landi? — Viðgerðum lítið af því fyrst í stað því við keyptum okkur hús og til að borga það var betra að vinna. Um 1964 fékk systir mín vinning hjá DAS sem dugði fyrir fyrstu útborgun í parhúsi í smáíbúða- hverfinu. Síðan unnum við fyrir næstu útborgunum. Okkur fannst betra að borga húsið og eiga það skuldlaust, vera þar með áhyggju- lausar í stað þess að vera alltaf með áhyggjur. Mér myndi líða illa ef ég skuldaði einhverjum, guð minn almáttugur. — Þið hljótið þó að hafa tekið víxla meðan þið voruð að þessu, segi ég, verðbólgubamið sem ekki skil húsakaup án verðtryggðra skulda. — Nei, ég hef aldrei tekið víxil. Við unnum bara fyrir útborgunum og stóðum í skilum með því að vinna. — Þú hefur ekki haft neinn tíma til að gifta þig? — Nei, nei, engan tíma til að hugsa um svoleiðis, segir Gunna og hlær. — Það hefur enginn af áhafn- VÍKINGUR

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.