Sjómannablaðið Víkingur

Volume

Sjómannablaðið Víkingur - 01.10.1982, Page 28

Sjómannablaðið Víkingur - 01.10.1982, Page 28
„Við skelltuni okkur í hópferð til Kína í júní og til Thailands í desember, sama ár. Þá vorum við búnar að borga húsið og gátum farið að sjá okkur um í heiminum. Ég gæti ekki liugsað mér að skulda peninga," segir Gunna í kaffistofunni hjá Ríkisskip sem er vinnustaður hennar nú. breyta um klæðnað, hárgreiðslu og fleira. Við fórum til Kína í júní og í desember sama ár, skelltum við okkur til Thailands. Hópurinn sem fór til Kína var mjög skemmtilegur og þar kynntumst við komu sem dreif okkur með sér til Thailands. Þar er allt önnur menning en fróðlegt að kynnast henni líka. Við hefðum bara þurft að vera þar miklu lengur, til að sjá allt sem landið hefur upp á að bjóða. Kom í land fyrir viku og fer kannski aftur á sjó. 1978 dó systir mín um borð í Esju. Hún kvartaði undan verk í maga og sagðist ætla að leggja sig. Ég hélt ekki það væri neitt alvar- legt en eftir þrjá daga var hún dá- in. Á Siglufirði kom til hennar læknir, hann hélt kannski að eitt- hvað væri að skeifugörninni en síðar var mér sagt að blætt hefði inn á magann. Hún kvartaði aldrei svo maður veit ekki hve mikið hún kvaldist. — Ég hélt áfram að sigla og hef verið eini kvenmaðurinn um borð síðan, nema ef mikið er um hringferðafarþega á sumrin, þá er bætt við stúlku. Hásetamir tóku að sér að þrífa sína klefa eftir að ég varð ein svo ég þríf bara hjá yfir- mönnum, farþegum og gangana. — Hvernig líst þér á að fara að starfa í landi? — Ég er bara búin að vera í landi í viku svo það er ekki komin nein reynsla á það. Ég ætla að sjá til hvernig þetta verður. Aðstaðan hér er ekki orðin eins og hún á að verða, þetta er að komast í gagnið smátt og smátt. Þeir báðu mig að taka þetta að mér svo ég sam- þykkti það en ég get alltaf farið á sjóinn aftur ef mér líkar ekki Nú var kominn kaffitími og hafnarverkamenn tóku að streyma inn í kaffistofuna. Sumir hafa kaffibrúsa með sér, aðrir kaupa sér kaffi og vínarbrauð hjá Gunnu. Þeir setjast að tafli eða taka í spil og gamanmálin fjúka. Eflaust finnst þeim notalegt að vera búnir að fá konu til starfa sem býður upp á heitan sopa að loknu erfiði og allir eru þeir sammála um að að- staðan í nýja húsinu sé mjög til bóta. Gunna heldur því áfram að stjana við kalla, eins og hún hefur gert í aldarfjórðung og gengur til þeirra verka með bros og spaug- yrði á vör. Við óskum henni vel- gengni í nýja starfinu. E.Þ. Nú hitar hún kaffisopa fyrir hafnarvcrkamcnn í nýja vörugcymsluhúsinu á Grófar- •’ryggju* Kristinn Guðmundsson hefur unnið við höfnina sl. 5 ár en hafði áður verið 50 ár á togurum og bátum en Birgir Baldursson hefur unnið sem hafnarverkamaður hjá Ríkisskip í 40 ár. 28 VÍKINGUR

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.