Sjómannablaðið Víkingur - 01.10.1982, Síða 31
„Eins og ryksuga sem sog-
ar aö sér og blæs frá sér”
— siglt eina ferð með sanddæluskipinu Perlu
Allir vita að mikið er byggt á íslandi en skyldu eins margir vita að
efnið til bygginganna er oft sótt á haf út? Í Reykjavík er fyrirtæki
sem heitir Björgun h/f, upphaflega stofnað til að vinna að björgun
strandaðra skipa, en starfrækir nú 4 sanddæluskip sem dag og nótt
dæla upp sandi og möl af hafsbotni sem síðan er harpað og sigtað í
11 mismunandi tegundir byggingarefnis, eftir grófleika.
Við bregðum okkur um borð í eitt skipa Björgunar h/f, Perluna,
og fylgjumst með þeim skipverjum, eina ferð, í blíðskaparveðri í lok
september.
Hreinsunardeildin
mætir við löndunina.
Útgerðarstjóri Björgunar,
Hreinn Hreinsson, tekur á móti
mér í húsi fyrirtækisins á Sævar-
höfða og sýnir mér sandhólana
sem hlaðast hafa upp á svæðinu.
Innan skamms leggst Perlan að
kantinum, tengir rörið um borð
við það sem er í landi og byrjar að
dæla. Þar sem við Hreinn stönd-
um, upp á hæsta hól og horfum
yfir, sjáum við hvar „hreinsunar-
deildin" kemur á vettvang og tek-
ur óðara til starfa. Það eru máv-
amir sem fljúga gargandi yfir
svæðið þar sem sandur, möl og
sjór sprautast út út rörinu. Þeirra
hlutverk er að tína allt ætilegt úr
góssinu. Þeim finnst kræklingur
og fleira góðgæti, mesta lostæti og
alveg óþarfi að því verði blandað
saman við sement og vatn, síðar
meir. Eigendur fyrirtækisins eru
líka hæstánægðir með uppátækið
svo þama hefur komist á fyrirtaks
samvinna.
Siglt út Viðeyjarsund.
Þegar skipið er orðið tómt og
búið að dæla einhverri reiðinnar
býsn af olíu um borð, hífir Garðar
háseti rörið inn fyrir borðstokkinn
og landfestar eru leystar. Við sigl-
um svo sem leið liggur út Viðeyj-
arsund en áður en Garðar sest inn
í messa og yljar sér á kaffisopan-
um, lokar hann fjórum af sex
lúguopunum og skiptir um lokur í
rörunum. Hann tekur lokuna úr
sogrörinu sem liggur nú meðfram
síðunni og setur hana í losunar-
rörið sem hefur lokið hlutverki
sínu í bili. Hann er sem sagt búinn
að gera klárt svo hægt sé að dæla
um borð þegar komið er á
áfangastað.
Flest með langan
starfsaldur að baki.
Skipverjar á Perlunni eru sjö í
einu um borð en í allt eru þeir
fleiri því alltaf eru einhverjir í fríi.
í þessari ferð var skipt um skip-
stjóra, kokk og annan vélstjórann.
Þau voru að koma úr viku fríi og
eiga nú eftir að sigla næsta hálfa
mánuðinn, stanslaust allan sólar-
hringinn, með sand og möl í land
31
Losunarrörið tengt við land ogbrátt streymirhið ómissandi byggingarefni í hauga, tilbúið
til notkunar fyrir framtakssama atorkumenn.
VÍKINGUR