Sjómannablaðið Víkingur - 01.10.1982, Page 45
feykilegt og kvaðst Jóhanna sem
er á sextugs aldri, orðin mjög slæm
í fótunum. „Maður er að verða
lappalaus“ eins og hún sagði. Þær
hafa samt hvorugar fundið til sjó-
veiki en þegar vont er í sjóinn fá
þær gjaman höfuðverk. Ég spyr
því hvort þær fái ekki eitthvert
álag vegna þessara aðstæðna t.d.
Gamla góða merkið
TRETORN
Merki stígvélanna sem sjó-
menn þekkja vegna gæö-
anna.
Fáanleg:
Með eða án trésóla.
Með eða án karfahlífar
Stígvélin sem sérstaklega
eru framleidd með þarfir
sjómanna fyrir augum.
EINKAUMBOÐ
JÓN BERGSSON
H/F
LANGHOLTSVEGI 82
REYKJAVÍK
SÍMI36579
svonefnt sjóálag sem stýrimönn-
um er greitt, en svo er ekki.
Öðruvísi á Akraborg
og Herjólfi
Þó allar þernur sem starfa á ís-
lenskum skipum séu í Þemufélag-
inu er þó nokkur munur á að-
stæðum þeirra. Þemumar á Akra-
borg og Herjólfi koma t.d. heim til
sín á kvöldin og þeirra störf felast
aðallega í afgreiðslu á veitingum,
þær þurfa ekki að sjá um skúring-
ar.
— „Við skiptumst á, fjórar og
fjórar yfir daginn á Akraborg-
inni,“ segir Emma. Það var oft
óskaplega mikið að gera í sumar
hjá okkur þegar bæði skipin voru
full, fimm ferðir á dag. Hálftím-
ann sem stoppað er í landi, notum
við til að þrífa borðin, vaska upp
og undirbúa næstu ferð en við
vorum oft ekki búnar að því í
sumar þegar fólkið fór að streyma
inn aftur. Þetta er oft ansi erfitt
þegar f jölmennt er í skipinu. Ég vil
taka það fram að samskipti okkar
við útgerðina eru með miklum
ágætum, forstjórinn er mjög lið-
legur við okkur en meðan við er-
um í Þenufélaginu er greitt sam-
kvæmt taxta þess og það kaup er
orðið alltof lágt,“ segir Emma.
Innan Þemufélagsins hefur
komið til tals hvort þær yrðu betur
settar með því að gerast félagar í
Sjómannafélögum viðkomandi
staða því þá gætu starfsmenn fé-
laganna annast mál þeirra. En
þemumar óttast að ef Þemufélag-
ið yrði lagt niður og þær samein-
uðust félögum háseta, sjómanna-
félögunum, myndi starfsheiti
þeirra líka leggjast niður og þær
nefndar vikafólk en það hefur enn
lægra kaup en þemur. Þess munu
dæmi að konur sem unnið hafa
sem þemur, hafa ráðið sig sem
vikafólk og unnið nákvæmlega
sömu störf og þær gerðu sem
þernur en fyrir minna kaup.
Eru þemur þá óþarfar
um borð nú á tímum?
Skip sem hafa færri en tólf
manna áhöfn, hafa yfirleitt ekki
þernur um borð en þar munu vera
svonefndir hjálparkokkar til að-
stoðar í eldhúsi eða messadrengir.
Þar sem fæstir eru um borð, sjá
kokkamir einir um störfin. Mun
erfiðara er að halda gömlu skipum
Eimskipafélagsins hreinum en
þeim nýrri og á þeim gömlu eru
sums staðar tvær þemur. Þær
stöllur, Jóhanna og Emma eru
sannfærðar um að ekki fengjust
karlmenn til að vinna störf þem-
anna fyrir það kaup sem þær fá og
auðvitað finnst þeim óréttlátt að
þær skuli fá svo lágt kaup, bara af
því þær eru kvenkyns. Þær eru
því staðráðnar í að standa fast við
kröfugerðina og rétta hlut starfs-
systra sinna og sinn eiginn. Þær
eru ánægðar í starfinu, finnst
heilnæmt og hressandi oft á tíðum
að vera á sjónum og gott and-
rúmsloft ríkjandi þar sem þær
vinna. Gaman væri að vita hvort
skipverjum finnst ekki líka mikils
virði að hafa konur um borð til að
lita aðeins það karlasamfélag sem
þar er. Grun hef ég einnig um að
flestar þemumar á farskipunum
sem yfirleitt eru konur á miðjum
aldri, vinni verk sín það vel og
samviskusamlega að útgerðinni sé
mikill hagur að hafa þær um borð.
Því er vonandi að takist að rétta
hlút þeirra svo sem sanngjamt er.
E.Þ.
Lögreglumaður sagði við
mann, sem gekk um gólf á gang-
stéttinni klukkan 3 að nóttu: —
Hvað ert þú að gera hér?
— Maðurinn: Ég gleymdi hús-
lyklunum og nú er ég að bíða eftir
að bömin mín komi heim.
VÍKINGUR
45