Sjómannablaðið Víkingur - 01.10.1982, Qupperneq 61
Ný tegund lyfti-
búnadar á markaðinn
Fyrir nokkru kynnti ASIACO
h.f. nýja tegund af lyftibúnaði,
sem framleiddur er af breska fyr-
irtækinu Parsons Chain Comp-
any. Þessi lyftibúnaður er saman-
settur af stálkeðjum, sem eru sér-
hannaðar til lyftinga og eru not-
aðar erlendis í sívaxandi mæli, þar
sem vírastroffur voru notaðar áð-
ur.
Þróun í keðjuframleiðslu hefur
verið mjög ör undanfarin ár, en
allt þar til fyrir nokkrum árum
voru keðjur smíðaðar í höndum
með einföldum handverkfærum
og efnið var einungis hrájám.
Málshátturinn „engin keðja er
sterkari en veikasti hlekkurinn,“
bendir til þess að þá hafi keðjur
verið misjafnar að gæðum.
Kynningarfund ASIACO sóttu
fulltrúar fjölda fyrirtækja og
stofnanna og á fundinn komu tveir
fulltrúar Parsons Chain, en þeir
sýndu hvernig keðja er framleidd
nú á tímum og hinir ýmsu tengi-
lásar og krókar fyrir þær. Hver
einasti hlekkur í stálkeðju frá
Parson er reyndur í framleiðslu
við visst álag, sem er tvisvar sinn-
um meira en leyfilegt vinnuálag
og ábyrgist Parson að allir hlekkir
keðjunnar séu jafnsterkir.
Stálkeðjurnar og tengilásamir í
lyftibúnaðinum nefnist Kuplex og
úr því er hægt að setja saman alls-
konar lyftibúnað á mjög skömm-
um tíma.
Hver einasti hlutur í Kuplex
kerfinu er þolreyndur í fram-
leiðslu og er því hægt að afgreiða
lyftibúnaðinn með skírteini sem
staðfestir leyfilegt vinnuálag. Auk
þess er búnaðurinn greinilega
merktur hámarksvinnuálagi og
því á aldrei að vera nokkur vafi á
hve þungum hlutum má lyfta
hverju sinni. Á fundi ASIACO
voru menn sammála um að hér
væri um mikið öryggismál að
ræða, því oft hefur komið fyrir að
hinn ýmsi lyftibúnaður eins og t.d.
stroffur hafa slitnað, þar sem
menn hafa ekki vitað um lyftigetu
þeirra.
Öryggisstuðull Kuplex kerfisins
Úr vcrkstæðishÚNÍ ASIACO.
Hér sést hvernig Kuplex Ivftibúnaður er
notaður.
er 4:1, en öryggisstuðull er hlutfall
milli brotþols og leyfilegs vinnu-
álags. Á það má benda að krafist
er að öryggisstuðull víra til sömu
notkunar sé 5:1 eða 6:1. Þessar
mismunandi kröfur á öryggis-
stuðlum sanna á einfaldan hátt
mismun á eiginleikum stálkeðju
og víra, þar sem nota má stálkeðju
til lyftinga nær uppgefnu brotþoli
en vír.
Eftir kynningarfundinn var
fundarmönnum sýnt verkstæði og
birgðastöð ASIACO á Hrólfs-
skálamelum á Seltjarnarnesi. Þar
verður Kuplex búnaðurinn settur
saman og afgreiddur. Verkstæðið
er búið mjög fullkomnum tækjum,
en auk Kuplex búnaðarins mun
ASIACO einnig framleiða venju-
legar vírstroffur.
Fram til þessa hafa íslendingar
mest notað af svokallaðri Trawlex
keðju og tengilásum frá Parson. Sá
búnaður er notaður á botnvörpu
og er því sem næst um borð í
hverjum einasta skuttogara í
Iandinu.
VÍKINGUR
61