Sjómannablaðið Víkingur - 01.10.1984, Page 16
NýJUNGAR
Benedikt
Alfonsson.
16 Víkingur
Sigla skip
framtíöarinnar
mannlaus um hafið?
Á Sjávarútvegssýningunni
sem haldin var hér i Reykjavik
i sept. s.l. var margt nýstárlegt
að sjá. Hér verður minnst á
nokkur tæki sem kynnt voru
eða sýnd á sýningunni og ætla
má að verði i skipi framtiðar-
innar sem sennilega siglir
mannlaust um hafið.
Tækjasamstæðan frá
Magnavox, stæðsti hlut-
urinn er loftnetið.
Sjðmenn hafa sjálfsagt oft
hugsað til þess, að þægilegt
væri að geta hringt heim með
þvi að velja númerið beint, fara
bara i simann og hringja heim
rétt eins og hver annar í landi.
Eins hve þægilegt væri, ef
hægt væri að hringja beint um
borð án milligöngu strand-
stöðva.
Þetta er nú orðið að veru-
leika. Á sjávarútvegssýning-
unni var kynnt tæki frá fyrir-
tækinu Magnavox sem gerir
sjómönnum kleift að hringja
heim beint, hvar sem þeir eru
staddiri veröldinni.
Þetta er tæki sem nýtir
fjarskiptagervitunglakerfið
INMARSAT. i INMARSAT
gervitunglakerfinu eru 3 gervi-
tungl, eitt yfir hverju heimshaf-
anna, Atlandshafi, Indlands-
hafi og Kyrrahafi. INMARSAT
nær því yfir höfin hringinn i
kringum jörðina og notendur
þurfa ekki annað en að taka
upp simatólið ýta á tiltekinn
takka og velja siðan númerið.
Sé hringt frá landi hringir sim-
inn um borð og er nóg að taka
upp simtólið, ýta á tiltekinn
það er strax beint samband
við þannerhringdi.
Fylgst með stefnunni
að heiman
INMARSAT gervitunglunum
var komið á loft á síöasta ára-
tug og Magnavox var tilbúið
með sin tæki um það leyti sem
tunglin voru til staðar. Fyrir-
tækið hefur nú fyrir nokkru
sett endurbætta gerð á mark-
aðinn. Eldri gerðin hafði t.d.
mjög fyrirferðarmikið loftnet,
sem nú hefurtekist að minnka
það mikið að ekkert vandamál
er að koma þvi fyrir í skipum
sem sigla að jafnaði yfir úthaf-
ið. Með tækjasamstæðunni
sem er loftnet, simatæki og
magnari er hægt aö fá tölvu-
rita (printer) fyrir telexsam-
band og tölvu með skjá. Með
ritvinnslukerfi tölvunnar er þá
hægt að skrifa á tölvuskjáinn
orðsendingu, skýrslu o.fl. sem
sent er til viðtakenda með
telexsambandi. Á sama hátt
koma telexsendingar um borð
sem prentarinn skrifar á þar til
gerðan pappir. Auk áður-
greindra tækja hefur Magna-
vox framleitt eftirlitskerfi
(Vessel Monitoring system,
skammstafað VMS), sem
fylgist með stefnu og hraða
skipsins, veðrinu, ástandi
farms, og ástandi og vinnslu
vélar. Þetta kerfi er hægt að
tengja beint við staðsetningar-
tæki, sem þá virkar sem nemi
kerfisins, staðsetning skips er
þá einnig með i eftirlitinu. Þær
upplýsingar sem eftirlitskerfið
gefur eru siðan sendar beint til
útgerðar. Það er ekkert þvi til
fyrirstöðu að áðurgreindar
upplýsingar fari beint til út-
gerðarán milligöngu áhafnar.
Eitt móttökutæki,
mörg siglingakerfi
Frá Magnavox var einnig
kynnt móttökutæki, sem bæði
tekur við merkjum frá Transit-
gervitunglakerfinu og Omega
siglingakerfinu. Tækið finnur
stað skipsins með merkjum
MNS 2000. Á tækinu sést breidd og leng, stýrð stefna, haldin stefna og
hlaðinn hraði.