Sjómannablaðið Víkingur

Årgang

Sjómannablaðið Víkingur - 01.10.1984, Side 57

Sjómannablaðið Víkingur - 01.10.1984, Side 57
Á undan okkur gengur gam- all, álútur maöur, hann á erfitt með gang, styöst við tunnu- staf. Þessi maöur man timana tvenna, sjósókn og sildveiöar eru honum engin nýlunda. Viö röltum fram á bryggjusporöinn og tylltum okkur á kaöalhönk sem þar liggur. Þetta er seinni part dags i janúarlok 1948. í Reykjavikurhöfn blasir viö ævintýraleg sjón. Hér liggur bátur viö bát. Allir eru þeir drekkhlaðnir, vinnuljósin á hafnarbakkanum varpa ann- arlegri birtu yfir sérkennilegan skóg mastra og reykháfa. Ljósiö endurspeglast i sildar- kösunum sem þekja þilför bát- anna. Höfnin er á aö lita sem risastór silfursjóður. Á hafnar- bakkanum iöar allt af lífi. Stórir löndunarkranar bisa viö aö koma sildinni á bilpalla. Vöru- bilar standa i rööum, neta- dræsur liggja á hafnarbakkan- um tilbúnar aö takast á viö sildina, hafnarsvæöið er sem vigvöllur yfir aö lita, vígvöllur sildarævintýrisins. Viö skulum gefa þeim gamla oröiö. „Aflinn siðustu daga hefur veriö meö ólikindum, ég man bara ekki eftir öðru eins. Ég rölti gjarnan á kvöldin hér austureftir og fylgist meö bát- unum úti á Rauðarárvikinni. Sumir hafa nú fengið fullfermi þar á örskömmum tima. Sildin hefur verið hér um allan sjó, á Sundunum, i Kollafiröinum og svo náttúrulega i Hvalfiröi. Þar hafa bátarnir fengiö fullfermi i tveimur köstum og næturnar hafa ósjaldan sprungið, svo mikil hefur sildin verið. Einn sólarhringinn fyrir nokkrum dögum veiddust 4.300 tonn af sild, og þaö á einum sólar- hring. En hvaö svo, þegar kallagreyin koma í land eftir slaginn viö sildina, hvaö biður þeirra þá, jú biö, biö og aftur biö, löng og þreytandi biö. Hvernig haldiö þiö aö sé aö biöa i höfn meö fullan bát af síld og vita af mokveiði aðeins örskammt frá, jafnvél í ytri höfnum? ja þaö er sko ekkert sældarlif, o sei, sei, nei. Menn eru nú reyndar misjafnlega iönir viö biöina. Sumir reyna aö koma sildinni i bræöslu hér í nágrannabæjunum, en biöin getur oröiö býsna löng. Flestir landa i flutningaskipin. Þiö sjáiö þarna fyrir handan, þarna liggja þrjú þeirra, Knob Knot hér næst, siðan Fjallfoss og loks Hraunfaxi. i óveðrinu hér um daginn skapaöist hálf- gert vandræðaástand þegar Knob var eitt hér að taka viö i nokkra daga. Á sama tima voru ellefu skip á Siglufirði aö biöa losunar. Skipin höföu taf- ist svona í óveðrinu, ekki kom- ist fyrir Horn. Já, þaö bætti nú ekki ástandið sem ekki var gott fyrir. Sumir voru reyndar þaö heppnir aö koma sildinni i Þjóðverjana. Þaö komu hér fimm þýskir togarar aö sækja sild einmitt um þetta leyti. Nú svo er bingurinn á Framvellin- um, þangaö er landað þegar annaö bregst. Siöan er siglt meö sildina þegar timi vinnst til. Kommarnir töldu aö Fram- vallarsíldin yrði óhæf til bræðslu, en hún reyndist ágætlega, þar uröu þeir sér enn einu sinni til skammar og svivirðingar. Bingurinn, bless- aöur bingurinn, hann hefur komiö sér vel. Þaö eru víst ein 50.000 mál þarna núna. En þetta gengur nú ekki til lengd- ar, viö veröum aö fá hingað sildarverksmiöjur. ’l þessu máli dugir ekkert hik, á þvi veltur hvort þjóöinni sparast tugir milljóna". Já, þaö var mikið af sild i Faxaflóanum i janúar 1948. Þaö voru lika margar hendur á lofti til aö gripa gróöann, en sildin getur veriö svikul. Hér eru tvær stuttar sögur um stóra sildardrauma. ER SVIKULT FÉ Árni Zopaníasson Sumarliði ísleifsson Víkingur 57

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.