Sjómannablaðið Víkingur - 01.10.1984, Side 19
Pennaoddi beint að
skjánum
Enska fyrirtækið Racal-
Decca (áður Decca) sýndi
auk MNS-2000 m.a. CVP
3500 lita videoplotter (mynd-
rita). Viö CVP 3500 er tengt
staðsetningartæki MNS-2000
eða Decca-tæki. Sé Decca-
tæki notað koma Decca-töl-
urnar einnig fram á skjánum
og er þá hægt að finna viö-
eigandi Deccalinu i decca-
kortinu og finna stað skipsins
þannig, auk þess sem hann
kemur frá á skjánum. Leiðina
sem á að fara, sjómerki, flök
og land er teiknað á skjáinn
Videoplotter frá Racal-Decca
meö sambyggöu diskadrifi.
með sérstökum rafeinda-
penna. Pennaoddinum er
beint að skjánum, ef gera á
punkt, en annars er hann
dreginneftirskjánum.
Allt sem er á skjánum, svo
sem leið skipsins, sjómerki og
góðir veiðistaðir, er hægt að
geyma á diski. Þegar komið er
á sama staðinn aftur, er disk-
urinn settur i diskadrifið og
kemur þá myndin, sem geymd
hafði verið, fram á skjánum.
Hingað til hefur aöeins verið
hægt að nota kassettur til
geymslu á gögnum fyrir tölvur
i skipum, en nú hefur tekist að
leysa tæknivandamál i sam-
bandi við notkun diska. Diskar
MýJUhGAR
geyma meira af gögnum auk
þess sem þeir eru hraðvirkari
en kassettur. Það tekur
aðeins 2 minútur að fá alla
hina geymdu mynd inn á
skjáinn, þegar diskur er not-
aður.
Hægt er aö velja mismun-
andi liti á leiðina sem sett er út
á skjáinn, en sú leiö sem skip-
ið fer er alltaf hvít. Tæki þetta
er ekki komið á markað enn,
en mun fljótlega gera það.
Myndir beintfrá
gervitungli
Japanska fyrirtækið Kaijo
Denki Co. LTD. sýndi tæki til
móttöku mynda frá NOAA
veðurgervitunglunum. Mynd-
irnar, sem eru af yfirborði jarð-
ar, ná yfir nokkuð stórt svæði,
en hægt er að minnka það,
svo að það veröi 1 /16 af upp-
haflega svæðinu, einstakir
hlutar verða þá greinilegri
(meiri upplausn).
Myndirnar eru annarsveg-
ar teknar á Ijósmyndavél, en
hinsvegar skynjaðar á radar á
innrauða sviði litrófsins (hita-
myndir). Hitamyndir fela i sér
sjálfvirka greiningu skýja frá
sjó eftir hitastigi.
Meö hitamyndunum (skýja-
myndunum) geta skipstjórar
séð hvar lægðir eru og hafa þá
möguleika á að fara fram hjá
verstu veðrunum. Þeir verða
þó sjálfir að gera sér grein fyrir
hreyfingu lægöanna fram í
tímann.
Hitamismunur i sjónum,
sem veldur litbrigöum á skján-
um, gefur visbendingu um
strauma i hafinu, þ.e. hvort
þeir eru heitir eða kaldir og
hver útbreiðsla þeirra er.
Sýnir straumhraðann
niðri í sjónum
Kaijo Denki sýndi einnig
tæki sem nefnist DCG-20B
Doppler Color Graph (doppler
litagraf). Tæki þetta er veg-
mæliren sýnir jafnframt á skjá
stefnu og hraða straums á
þrem mismunandi stöðum i
sjónum aö eigin vali skip-
stjóra, þetta er þó aðeins
mögulegt aö dýpi sé ekki
meira en 300 m. Tækiö sýnir
einnig bæði stýrða stefnu
skipsins og stefnu og hraða
þess miðaö við sjávarbotninn,
þ.e. stefnu og hraða leiðrétt
fyrir straumi. Auk þess sem
það sýnir vegalengdina, sem
farin hefur verið alls yfir sjáv-
arbotninn.
Vegmæli þennan má
tengja við KCS-502 fiskleitar-
tækið. Sé það gert koma upp-
lýsingar um strauminn fram á
litaskjá fiskleitartækisins.
Tengja þarf gýrókompás við
bæði þessi tæki svo stefnur
verði réttvisandi, þ.e. miðaðar
við rétt norður.
Fiskleitartækið KCS-502
var til sýnis á Sjávarútvegs-
sýningunni. Tæki þetta er
hringsjá (omnidirectional) og
búin ýmsum nýjungum svo
sem að nota má svo kallaö
Joy Stick og Ijóspenna (raf-
eindapenna) samtimis eða sitt
i hvoru lagi. Með Joy Stick og
Ijóspennanum eru endurvörp
merkt fyrir tölvuna i tækinu,
sem tekur þau þá til meðferð-
ar, reiknar miðun, dýpi á torf-
um og fjarlægð frá skipi. Auk
áður greindra möguleika biöur
tækið einnig upp á raunhreyf-
ingu, sem sýnir þá leið skips-
ins umhverfis torfuna, þ.e.
köstunina.
Þessi þrjú tæki frá Kaijo
Denki sem hér að framan hafa
verið nefnd eru að koma á
markaðinn.
Umboð hér á landi fyrir Kaijo
Denki er R. Sigmundsson h.f.
Tryggvagötu 8 Reykjavik.
Benedikt H. Alfonsson
Tækið sýnir mynd frá
NOAA gervitungli. Slíkar
myndir koma á um þaö
bil4tima fresti.
Litagrafvegmælirinn
DCG-20B, sem sýnir
stefnur miðað við rétt
norður vinstra megin en
strauminn á
mismunandi dýpi hægra
megin.
—~
KCS-502 fiskleitar-
tækiö. Joy Stick er rétt
neðan við miðju á miðri
stjórneiningunni, með
þvi er krossinn efst á
skjánum færðurtil.
Víkingur 19