Sjómannablaðið Víkingur

Årgang

Sjómannablaðið Víkingur - 01.10.1984, Side 62

Sjómannablaðið Víkingur - 01.10.1984, Side 62
Ævintýri Hærings gamla Hann er gömul striöskempa, til oröinn í Buffalo í Ameríku. Hann er sendur hingað noröur, kom- inn hátt á fimmtugsaldurinn. Móttökurnar eru höföinglegar, þaö vantar ekki, sjálfur forsætis- ráöherrann býöur hann velkominn. Hann er kallaöur tákn Marsjallhjálparinnar. Honum er ætl- aöur mikill starfi og ferðalög. Hann heitir Hæringur. Þaövarvesturí Bandaríkjunum áriö 1903, nánar tiltekiö í borginni Buffalo viö Vötnin mikiu, aö verkamenn hleyptu af stokkunum tæplega 1 þúsund lesta skipi, 390 feta á lengd og 50 feta á breidd. 62 Víkingur Fleiri bræðslur — fleiri bræðslur Það er ársbyrjun 1948, síldin vaðandi og aðeins fjórar litlar sildarbræöslur á Faxaflóa- svæðinu, Akranesi, Hafnar- firði, Njarðvik og Keflavík, sem afkasta ekki nema rúmum 400 tonnum á sólarhring. Það er varla nokkurt vit að sitja aö- gerðarlaus, aflinn i fyrra af Suðurlandssild var um 75 þúsund tonn og hann veiddist á skömmum tima. Á þessu ári stefnir i metafla og engin bræðsla er i Reykjavík. Útvegsmenn hafa líka tekið við sér, enda telja þeir sig sjá fram á að ekki verði nokkur leið fyrir bræðslurnar að vinna úr allri þeirri sild sem berst á land. Þegar er búið að ákveða að drifa i að stækka verk- smiðjurnar sem fyrir eru og byggja auk þess nýjar við Köllunarklett i Reykjavik og i Hvalfiröi, þannig að fyrir lok ársins verði hægt að vinna úr u.þ.b. tvö þúsund tonnum á sólarhring. Samkvæmt áætluninni á aöeins ein þessara verk- smiðja að vera i Reykjavík. Það hlýtur að vekja spurning- ar, auk þess sem ekki er sjálf- sagt að fyrirhuguð stækkun sé nægileg. Bæjarstjórnin i Reykjavik ákveður að kanna þetta nánar og fær til þess helstu útgeröarstórlaxana i bænum, þá Svein Benedikts- son formann stjórnar Síldar- verksmiðja rikisins, Ingvar Vilhjálmsson forstjóra ísbjarn- arins, Jón Axel Pétursson forstjóra Bæjarútgerðar Reykjavíkur og Jakob Haf- stein framkvæmdastjóra LÍÚ. Auk þeirra eru i nefndinni, Jó- hann Hafstein bæjarfulltrúi og alþingismaður og Þorvarður Björnsson yfirhafnsögumaður i Reykjavik. Liðið er á janúar 1948, þeg- ar nefndin skilar niðurstöðum: Við teljum að bæjarstjórnin eigi að beita sér fyrir þvi að mynda hlutafélag um sildar- verksmiðju í skipi sem geti unnið úr allt að 10 þúsund málum á sólarhring (1350 tonn) af sild. Til eru vélar i landinu sem Óskar Halldórs- son útgeröarmaður á. Það er höfuðkostur við svona verk- smiðju, að hana verður bæði hægt aö nota til að vinna úr Faxaflóasildinni á veturna og á sumarvertið fyrir norðan. Undir lok janúarmánaðar samþykkir bæjarstjórnin að hrinda tillögum sildarbræöslu- nefndarinnar í framkvæmd. Ákveðiö er að stofna hlutafé- lag með þátttöku Reykjavikur- bæjar, Sildarverksmiöja rikis- ins, hlutafélagsins Hafsildar, sem útgerðarmenn stofnuöu i þessu skyni, og loks Óskars Halldórssonar, sem leggur til bræðsluvélarnar í skipið. Hlutafélag er formlega stofn- að þann 12. febrúar og hlýtur nafnið Hræringur. Hlutaféð er 5 milljónir og á hver sinn fjórð- ung. Vestur í Buffalo Það var vestur í Bandaríkjun- um árið 1903, nánar tiltekið í borginni Buffalo við Vötnin miklu, að verkamenn hleyptu af stokkunum tæpleg 7 þús- und lesta skipi, 390 feta á lengd og 50 feta á breidd. Lífshlaup þess er ókunnugt að öðru leyti en því, að nokkru fyrir seinni heimsstyrjöldina virðist sem skipinu hafi verið lagt eftir langa og dygga þjón- ustu, en tekið til handargagns á ný árið 1943 þegar amer- íska herinn vantaði skip og lagfært mikið. Að striðinu loknu var Duluth, eins og skip- ið hét þá, verkefnalaust og þeið nýrra starfa i Portland á Kyrrahafsströnd Bandarikj- anna. Ýmsir sýndu áhuga á að fá Duluth i sína þjónustu og varð italskt skipafélag loks hlutskarpast. Duluth horfði fram á Ijúfa daga við Italiu- strendur en svo breyttist allt, Ítalir gátu ekki staðiö í skilum og samningunum var rift. Áðurgreind sildarbræðslu- nefnd lagði nú til að þetta skip yrði keypt, samkvæmt ráöum Jóns Gunnarssonar verk- fræðings. Hann og fleiri höfðu skoðað skipið og taliö skrokk þess i ágætu ásigkomulagi, enda hefði það alið nánast all- an aldur sinn i ósöltu vatni og tærðist þvi minna en ella. Talið var að skipið gæti enst i 15 ár án verulegs viðhalds, og mundi kosta, komið hingað til lands með ýmsum aukabún- aði, um 3 milljónir króna, en um 5,5 milljónir eftir að búið væri aö koma sildarbræðslu- vélunumfyririskipinu. Stjórn Hærings komst að þeirri niðurstöðu að rétt væri að taka þessu iilboði. Duluth er snúiö á norðurslóðir og

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.