Sjómannablaðið Víkingur

Volume

Sjómannablaðið Víkingur - 01.10.1984, Page 81

Sjómannablaðið Víkingur - 01.10.1984, Page 81
FELAGSMAL Dagana 22. og 23. október 1984 kom saman i Borgartúni 18, Reykjavík, húsi F.F.S.Í., fiskveiðinefnd F.F.S.Í.. Nefnd þessi var fyrst stofnuð á þingi F.F.S.Í. 1981, en var aldrei köll- uö saman 1982. Á þinginu 1983 var aftur samþykkt að stofna slika nefnd. Verksvið nefndarinnar skyldi vera að kynna sér allar leiðir er til greina koma við stjórnun fisk- veiða og taka afstöðu til þeirra hugmynda sem fram kunna að koma á næsta ári, 1984, um stjórnun veiða. Nefndin skal þannig skipuð að öll félög inn- an F.F.S.Í., sem eiga starfandi menn við fiskveiðar, skulu skipa tvo menn í nefndina. Annar starfi á togurum en hinn á bátaflotanum. Þau félög sem eingöngu eiga starfandi menn i annarri greininni skipi einn mann i nefndina. Nefnd þessi skal vera til staðar og taka fyr- ir þau mál sem henni berast um stjórnunarleiðir i fiskveið- um. Nefndinni skal skipt i tvær undirnefndir og fjalli önnur um veiðar togara og hin báta. Forseti og varaforseti F.F.S.Í. skulu vera formenn nefndarinnar og skipta með sér verkum þannig að annar sé með bátaveiðar og hinn með veiðar togara. Mættir voru eftirtaldir menn frá þeásumfélögum: Farmanna- og fiskimanna- samband íslands: Guöjón A. Kristjánsson, Helgi Laxdal. Skipstjóra- og stýrimannafél. „Verðandi": ÓskarÞórisson. Skipstjóra- og stýrimannafél. „Aldan": Gunnar Gunnarsson, Sturla Einarsson. Skipstjóra- og stýrimannafél. „Visir“: Garðar Garðarsson, Sig. Trausti Þóröarson. Skipstjóra- og stýrimannafél. „Bylgjan": Flosi Jakobsson, Guðni Einarsson. Skipstjóra- og stýrimannafél. „Sindri": Halldór Jónasson. Sá hluti nefndarinnar sem fjallaði um veiðar togaranna. Skipstjóra- og stýrimannafél. „Ægir“: Ólafur Jónsson. Vélstjórafélag íslands: Samúel Guðmundsson, Guömundur Hafsteinsson. Vélstjórafélag Vestmanna- eyja: Halldór Waagfjörð. Skipstjórafélag Norlendinga: Gisli Jóhannsson, Sigurður Haraldsson. Félag islenskra loftskeyta- manna: ReynirBjörnsson. Fyrir nefndina voru lögð eft- irfarandi gögn L fundarbyrjun: Öll lög og reglugeröir sem i gildi eru á þessu ári um fisk- veiöar. Uppkast að frumvarpi til laga um stjórnun fiskveiða næstu ár með tillögum til breytinga. Gæðaskýrsla Fiski- félags íslands. Úttekt á veið- um skipa á þeim 7 tegundum sem eru í kvótaskiptingu á þessu ári miðað við stöðuna 3. október 1984. Reglugerðir um sérstök togveiðisvæði. Yfirlit yfir aflann 1978—1983. Tillög- ur Hafrannsóknarstofnunar og hvað var veitt af hverri teg- und. Dagskrá var þannig 22. október að forseti setti fund- inn kl. 14:10 og bauð menn velkomna. Siðan ræddi Jakob Jakobsson um fiskistofna og horfur. Fyrirspurnir voru marg- ar og ræddu fundarmenn við Jakob til kl. 16:15 um alla þætti fiskveiða og rannsóknir Hafrannsóknarstofnunar. Þá var gefið kaffihlé til kl. 16:45. Fundi haldið áfram og sameig- inlegur fundur báta- og tog- aramanna um hver heildara- flaviðmiöun ætti að vera og hvort marka ætti stefnu til fleiri ára i senn. Samþykkt að FFSÍ mótar fisk- veiði- stefnu Nefndin skal þannig skipuö aðöllfélög innan FFS/, sem eiga starfandi menn viö fiskveiöar, skuli skipa tvo menn í nefndina. Annar starfi á togara, hinn á bátaflotanum. Víkingur 81

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.