Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.1985, Blaðsíða 22
FÉLAGSMÁL
nýrra, verður að leysa. Við
skulum gera okkur það Ijóst
að þessi staða getur komið
uþp vegna fleiri starfa um
þoröinnanfárraára.
Haustið 1984 voru sam-
þykkt ný lög um atvinnurétt-
indi skipstjórnarmanna og at-
vinnuréttindi vélfræðinga,
vélstjóra og vélavarða á is-
lenskum skipum. I þessum
Á þessu sviöi er þvi um
verulegan árangur að ræða.
Öryggismálin
i öryggismálum hefur verið
mikið unnið siðastliðin tvö ár.
Alþingi Íslendinga skipaði
sérstaka öryggismálanefnd
sjómanna, sem hefur þegar
unnið gott starf og á vafalaust
eftir að láta margt gott af sér
*
■■■
Valið lið kvenna vann
ýms störf til þess aö
þingið gæti farið sóma-
samlega úr hendi, ýmist
viö skriftir eöa
matreiðslu. Við þingslit
kallaði Guðjón þær sem
til náðist upp að ræðu-
stól og baö þingheim að
sýna þeim þakklæti sitt
með lófaklappi.
22 VÍKINGUR
lögum var sérstaklega hugaö
að þvi vandamáli sem rétt-
indalausir menn og undan-
þáguveitingar hafa verið und-
anfarin ár. Um afgreiðslu
þessara laga stóð nokkur
styrr innan okkar samtaka á
sinum tima.
Sú stefna sem þar var
mörkuð, að gefa réttindalaus-
um mönnum kost á nám-
skeiði til öflunar réttinda, var
að minu viti það eina rétta.
Þessi námskeið eru nú i
gangi viða um land og nokkur
vélstjóranámskeiö eru þúin.
Þessi leið hefur á einu ári
stórlega fækkaö undanþág-
um.
Veiting undanþága fer nú
fram með skipulegum hætti
hjá sérstakri undanþágu-
nefnd.
leiða i framtiðinni. Formaður
nefndarinnar er Pétur Sig-
urðsson, alþingismaður.
Slysavarnafélag íslands
hefur á þessu ári haldið
námskeið fyrir starfandi sjó-
menn um marga þætti örygg-
ismála. Þessi námskeið hafa
mælst mjög vel fyrir meöal
sjómanna. Reyndustu yfir-
menn i flotanum hafa sótt
þessi námskeið ásamt öðrum
með mina starfsreynslu. Það
er samdóma álit okkar
reyndustu manna, að þeir hafi
ekki siður þörf fyrir þjálfun og
endurmenntun á slikum
námskeiðum en þeir sem
minni hafa starfsreynsluna.
Samgönguráðherra Matth-
ias Bjarnason skipaði 14.
mars s.l. fjögurra manna
nefnd til þess aö fjalla um
námskeiöahald um öryggis-
mál sjómanna. í nefndina
völdust eftirtaldir menn: Ólaf-
ur S. Valdimarsson ráðu-
neytisstjóri formaður, Árni
Johnsen alþingismaður, Har-
aldur Henrýsson forseti
Slysavarnafélags íslands og
Magnús Jóhannesson sigl-
ingamálastjóri.
Aðaltillaga nefndarinnar er
á þá leið að nú þegar verði
haldin 3—4 daga farnám-
skeið fyrir sjómenn um örygg-
ismál á sama grundvelli og
Slysavarnafélag Islands hef-
ur gert að undanförnu i
Reykjavik. Námskeiðin verði
haldin á öllum helstu útgerð-
arstöðvum landsins. Fjöldi
sjómanna á landinu er um
6 — 7 þúsund menn. Að mati
nefndarinnar væri æskilegt
að ná til allra íslenskra sjó-
manna með lágmarksörygg-
isfræðslu á 3—5 árum.
Nefndin fjallaði ýtarlega um
möguleikana á þvi að fá skip
til þess að hýsa námskeiöin.
Varðskipið Þór sem Slysa-
varnafélag íslands hefur nú
eiganst væri vissulega góður
kostur til þess að hýsa slikt
námskeið. Með því móti væri
auðvelt að flytja námskeiðin
milli staða og auðvelt væri að
koma fyrir verklegum æfing-
um, sem þurfa að fara fram
við sjó.
Nefndin leggur til að koma
skuli upp verklegri þjálfunar-
miðstöð í brunavörnum fyrir
sjómenn.
Margar fleiri tillögur eru i
nefndarálitinu.
Nefndin leggur áherslu á að
framkvæma beri tillögur
hennar um lágmarksöryggis-
fræðslu i öllum helstu útgerð-
arstöðvum landsins svo fljótt
sem auðiðer.
Lagt er til að teknar veröi
inn á fjárlög 1986 10 millj.
króna til þessa námskeiöa-
halds.