Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.1985, Síða 88
Stofnmæling
Ljóst er að nákvæmni stofnmatsins hefur aukist verulega i flestum tilvikum. Bestur árangur hefur náðst hjá karfa, steinbit og skráp- flúru. Enda þótt skipulagning verkefnisins hafi eingöngu miðast við lifnaðarhætti þorskstofnsins hefur ná- kvæmni i stofnmati þorsks ekki aukist mest. Þetta bend- ir til þess að utþreiðsla þorsk- stofnsins sé ójafnari en út- breiðsla skrápflúru, svo dæmi sé tekið. Engu að siður má álykta að nákvæmni í mati þorskstofnsins hafi aukist verulega miðað við fyrri sam- bærilegar niðurstöður.
Lokaorð
Lokaorð Með þessu rannsókna- verkefni var ráðist í umfangs- meiri gagnasöfnun en áður hefur þekkst á þessu sviði hér við land. Þær niðurstöður sem hér hefur veriö lýst eru aðeins brot af þeim fjölþættu upplýsingum, sem i gögnun- um felast. í stórum dráttum staðfesta niðurstöðurnar það sem þegar var vitað um lifn- arðarhætti hinna ýmsu fisk- stofna. Þessi gögn munu þó veita mun nákvæmari líf- fræðilegar niðurstöður en til þessa, sem ná auk þess til mun fleiri tegunda samtimis. Ætla má að þessi gögn geti því stuðlað aö frekari saman- burði á liffræöilegum eigin- leikum og lifnaðarháttum fiskstofnanna en fram hefur fariðtil þessa. Með þessu verkefni var tekið upp það nýmæli að skipuleggja og framkvæma rannsóknaverkefni i mjög nánu samráði við sjómenn og útvegsmenn. Tilgangur þessa er tvíþættur: Annars- vegar að styrkja niðurstöður verkefnisins með þvi að nýta umfangsmikla reynslu og þekkingu sjómanna. Hins- vegar að stuðla að þættum samskiptum við sjómenn með sliku samvinnuverkefni. Ljóst er aö gagnkvæmur skilningur sjómanna og ann- arra aðila í sjávarútvegi og fiskifræöinga hefur aukist til muna við tilkomu þessa sam- vinnuverkefnis. Aðalmarkmið þessa verk- efnis er þó að auka ná- kvæmni i mati á stærð helstu nytjastofna, einkum þorsk- stofnsins. Enda þótt gögn séu enn ekki fullkönnuð i þessu tilliti, má þó álykta að þessu markmiöi hafi í megin- atriðum verið náö. Með hlið- sjón af þessu þykir full ástæða til að halda þessu verkefni áfram. Endanlegar niðurstöður um gagnsemi þess og nákvæmni meö tilliti til stofnmats munu raunar ekki liggja fyrir fyrr en að loknum nokkurra ára rann- sóknum, eöa eftir um það bil 5 til 10ár. Þakkir Skipstjórar rannsóknatog- aranna og ýmsir aðrir skip- stjórnarmenn tilnefndir af Farmanna- og fiskimanna- sambandi íslands tóku virkan þátt í undirbúningi og skipu- lagningu verkefnisins. i rann- sóknaleiðangrinum störfuðu 75 sjómenn við veiðarnar og meðhöndlun aflans og að- stoöuðu auk þess við gagna- söfnun. Hina umfangsmiklu gagnasöfnun í rannsókna- leiðangri önnuðust 25 starfs- menn Hafrannsóknastofnun- arinnar. Margir starfsmenn stofnunarinnar tóku jafnframt þátt i undirbúningi leiðang- ursins i landi. Öllum þessum samstarfsmönnum færum við þestu þakkir fyrir þeirra fram- lag til þessa verkefnis.
VÉLAÞÉTTI
Ýmsar gerðir fyrir öll algeng efni, svo sem: Vatn,
gufu, olíur, bensín, kæli- og frystivökva og ýmis
önnur uppleysandi efni.
HEIMSÞEKKT GÆÐAVARA
G. J. FOSSBERG
VÉLAVERZLUN HF.
Skúlagötu 63 - Reykjavík
Slmi 18560
Útbúum lyfjakistur fyrir skip
og báta.
Eigum ávallt tilbúin lyfja-
skrín fyrir vinnustaöi, bif-
reiöar og heimili.
INGÓLFS APÓTEK
Hafnarstræti 5. Sími 29300