Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.1985, Blaðsíða 26
32. þing FFSÍ
26 VÍKINGUR
visaö i Yfirnefnd og verðiö
ákveðið með kaupendum og
oddamanni gegn atkvæðum
seljenda, sem töldu að verðið
til frystingar ætti að vera það
sama og til söltunar og i sömu
flokkum eftirstærð.
Því sjónarmiði var alfarið
hafnað af kaupendum. Ekki er
Ijóst hvað mikil hækkun erfrá
siðustu vertið, þar sem þá var
ekki ákveðið verö til frysting-
ar, en vegið á meðaltali afla-
samsetningar i spám Hafró
um stæröardreifingu sildar á
þessari vertiö, og líklegt að
hækkunin sé svipuð og á
saltsild.
Þar með má segja að lokið
sé að mestu verðlagningar-
málum á þessu herrans ári
1985.
Á siðasta þingi okkar var
samþykkt ályktun um að eðli-
leg endurnýjun fiskiskipa-
stólsins yröi hafin. Fyrir þvi
máli hefur forseti sambands-
ins talað í Skipastólsnefnd
Sjávarútvegsráðuneytisins
og stjórn Fiskveiðisjóðs.
Stjórn Fiskveiðasjóðs hefur
nú samþykkt tillögur til
stjórnvalda um þessi mál,
svohljóöandi.
Afkoma útvegsins
Rekstrarafkoma sjávarút-
vegsfyrirtækja hefur verið
mjög slæm undanfarin þrjú ár.
Verðmæti útflutnings sjáv-
arafurða er um 500 milljónir
dollara árin 1982—84 en var
um 700 milljónir dollara árin
1980—81. Þaö leiðir af sjálfu
sér að þessi samdráttur i
heildartekjum sjávarútvegs-
ins veldur ómældum erfiðleik-
um fiskvinnslu, útgerðar og
sjómanna. Orsakir þessarar
þróunar má meðal annars
rekja til samdráttar á þorsk-
afla landsmanna. Árin 1982
og 1983 stafaði þessi sam-'
dráttur af náttúrulegri breyt-
ingu á lifsskilyrðum i hafinu
umhverfis landið. Við þá
staöreynd verðum við að
sætta okkur hvort sem okkur
likar betur eöa verr. Árið 1984
og á þessu ári bötnuðu lifs-
skilyrði svo mjög á miðunum
viö landið að meiri þorskur
hefur tæpast verið á miðun-
um siðustu áratugi. Við búum
þó ennþá við skömmtunar-
og haftakerfi í almennum
botnfiskveiðum.
Það stafar ekki lengur af
eðlilegri náttúrulegri sveiflu,
heldur er það nú af manna-
völdum. Tillögur Hafrann-
sóknastofnunar byggjast
ennþá á þvi að vera einu til
tveimur árum á eftir þróun
lifsskilyrða i hafinu.
Jakob Jakobsson forstjóri
Hafrannsóknarstofnunar var
meðal gesta við þingsetning-
una.
i tillögum Hafró má enn sjá
sama munstriö i spám fyrir
næsta ár eins og var árin
1978—1980. Þegar lifsskil-
yrðin i hafinu versnuðu 1982
var ennþá verið að spá aukn-
um afla einu til tveimur árum
of seint. Það er min skoðun á
þessum málum, að þegar
ekki er hægt að sjá ár fram i
timann um þróun hitastigs
sjávar við landið og breytingu
á lifsskilyrðum fiska i hafinu,
þá séu þessar spár um stofn-
stærð og aflabrögð tilgangs-
litlar. Meiri festa fengist út úr
viðmiöun við meðalársafla
siðustu tuttugu ára eftir 1965,
þegar lifsskilyrði fóru að vera
jafn breytileg og raun ber vitni
um. Þó margt hafi verið betur
gert varðandi rannsóknir
fiskifræðinga á þessu ári,
erum við samt ennþá á þeim
stað sem áður er getið.
Kvótakerfi á hvert einstakt
skip yfir tiu lestir á almennum
botnfiskveiðum er stjórnkerfi
sem ég hef engan áhuga á að
vinna að.
Ég hef nú rætt og rakið
ýmis hagsmunamál F.F.S.Í.
og sett fram eigin skoðanir á
vissum málaflokkum. Ég tel
rétt að ræða opinskátt um
þessi mál.
Það er tilgangslaust að
velja menn til forystustarfa og
ætlast til að þeir fylgi eftir
málum, sem ganga þvert á
sannfæringu þeirra sjálfra.
Ég vil taka það fram til aö
fyrirbyggja misskilning fjöl-
miölamanna, að þó að við
Halldór Ásgrimsson sjávarút-
vegsráöherra séum ekki á
sama máli um stjórnun al-
mennra botnfiskveiöa, þá
hafa samskipti okkar siöustu
tvö árin verið góð og heiðar-
leg.
Ég vil að lokum þakka þeim
sem ég hef starfað með i
stjórn sambandsins siðustu
tvö árin. Þar hafa árekstrar
verið fáir, en meiningarmunur
i einstökum málum. Sérstak-
lega vil ég þakka fráfarandi
framkvæmdastjóra Ingólfi
Stefánssyni fyrir samstarfið
og veit að ég mæli fyrir munn
félaga F.F.S.Í. og óskum við
þér alls þess besta i framtið-
inni. Við starfi Ingólfs hefur
tekið Harald Holsvik. Megi
honum velfarnast.
Samstarfsfólki i Borgartúni
18 færi ég þakkir fyrir
ánægjulegt og gott samstarf.
Bestu óskir um starfsamt
og gottþing.
32. þing F.F.SÍ ersett.