Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.1985, Blaðsíða 98
Hcr oé nú
Tónlist
Andrea
Jónsdóttir
„íslenskar"
hljómplötur
Islenskar hljómplötur
streyma inn á jólamarkaöinn
þegar þetta er skrifað 18.
nóv. Reyndar er vafasamt aö
tala um íslenskar plötur i
sumum tilvikum, þar sem is-
lensku flytjendurnir syngja á
ensku. Þeirra á meðal eru
Herbert Guðmundsson og
Magnús Þór Sigmundsson,
sem við gluggum aðeins bet-
ur í hér á eftir, og svo tvær
poppgrúppur, sem ég hef
reyndar bara heyrt i útvarp-
inu, Cosa Nostra og Rikshaw
(öðru nafni Rikshaw Rik-
shaw)... en látum oss lika á:
98 VÍKINGUR
Björn Thoroddsen
Björn Thoroddsen er vel
lærður gitarleikari bæöi
heima og erlendis og hefur
helst verið viðriðinn djass og
bræðslu af honum og rokki.
Björn gaf út sólóplötuna Svif
árið 1982, en sama ár útskrif-
aðist hann úr the Guitar Insti-
tute of Technology i Holly-
wood, og i fyrra gaf hljómsveit
hans Gammarnir út breið-
skifu. Hvorug þeirra skífna
þótti undirritaðir skemmtileg,
enda meira upp á rokkhönd-
ina en djass-. Hins vegar
bregöur svo við með þessa
nýju skífu Björns, sem heitir i
höfuðiö á honum ... eða
kannski alls ekki neitt, að mér
likar hún Ijómandi vel. Hér er
ekki bara sýning á tæknileg-
um fangbrögðum Björns við
gitarinn, heldur eru melódí-
urnar skemmtilegar og spila-
gleði og -kraftur hefja tækn-
inaáhærrasvið.
Með Birni spila tveir góðir
trommarar (sitt í hvoru lagi
þó), þeir Steingrimur Óli Sig-
urðarson og Pétur Grétars-
son, Eyþór Gunnarsson
Mezzoforte fer fimum hönd-
um um hljómborð í 5 lögum
(af 10), Skúli Sverrisson (úr
Pax Vobis) á Ijómandi góðan
bassaleik og Pálmi Gunnars-
son syngur þekkilega eina
sungna lagið á „Birni“, Litlu
linu, ágætan texta Stefáns
Stefánssonar sem leikur á
saxófón gleðilega í 3 lögum.
Björn Thoroddsen færiross
hér með notalegt stuð, er
heldur nær rokkinu en áður,
minnist t.d. Santana á köflum.
Enginn skyldi þvi láta grá-
móskulegt plötuumslagið
plata sig, platan sem þaö
inniheldur leikur við hvurn
sinn naglalakkaðafingur.
Herbert
Guðmundsson:
The Dawn of the
Human Revolution
Eins og göfugur titill plöt-
unnar gefur til kynna syngur
Herbert á ensku. Á „Dögum
mannkynsbyltingarinnar" eru
10 lög, sum Ijúf, önnur „töff-
araleg“, en svo vill til að Her-
bert er sterkari i þeim Ijúfu og
hefði veriö meiri heildarsvipur
á þessari plötu ef hann hefði
látið gamla rokkhlið úr fortið
sinni eiga sig og haldið sig við
lög eins og You can’t walk
away, sem þekktast er af
þessari nýju plötu Herberts.
Mest er fyrir þaö lag gert i
vinnslu á skifunni, bakraddir
eru t.d. Ijómandi góðar
(Magnús Þór syngur þær með
Herbert). Þá er Beautiful girl
ágæt ballaöa, hugguleg
danslögin Tonight og To be
true og lagið Not the only
Life gengur upp i töffheitum
sinum fyrir tilstilli gítarleiks
Þorsteins Magnússonar, sem
á reyndar góðan leik þar sem
hann kemur viö sögu á þess-
ari plötu.
Þetta er ágætispopp að
meirihluta hjá Herbert og You
can't walk away ekki verra en
margt vinsældalistalag i út-
löndum. Hins vegar er plata
hans í heild ekki samkeppn-
isfær á þeim vígstöðvum,
frekar en hinna útlensku-
syngjandi popparanna sem í
innganginum eru upp taldir;
og hvers vegna þá að vera að
kyrja allt þetta á misvondri
ensku?
Kristín Ólafsdóttir:
Ámorgun
Þessi plata flokkast undir
vísnatónlist. Lögin eru ættuð
allt frá Islandi til Suður Amer-