Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.1985, Page 84
Stofnmæling
8. mynd. Meðalþyngd
(kg) eftir aldri hjá
þorski, ýsu, ufsa og
steinbít á öllu rann-
sóknarsvæöinu.
84 VÍKINGUR
Sjö ára steinbítur og yngri
er skilgreindur sem ungviöi.
Þeir aldursflokkar stofnsins
virðast vera tiltölulega jafnir
aö stærö. Þetta gefur til
kynna aö nýliðun steinbits sé
fremur jöfn frá ári til árs og
stærö stofnsins þvi fremur
litlum breytingum undirorpin.
Meginuppeldisslóö steinbits
er augljóslega á noröursvæö-
inu.
í veiöistofni steinbits (8 ára
fiskur og eldri) var 12 ára
fiskur mest áberandi, eöa
16% stofnsins miöaö viö
þyngd. í heild stóöu fremur
margir aldursflokkar aö veiöi-
stofni eöa 8—16 ára fiskur. i
hrygningarstofni var 10—16
ára fiskur algengastur. Á
heildina litiö viröist steinbits-
stofninn þvi vera fremur stöö-
ugur stofn og undir tiltölulega
litlum áhrifum af völdum fisk-
veiða.
Meðalþyngd og kynþroski
Meðalþyngd eftir aldri er
reiknuö á grundvelli aldurs-
greindra kvarna og samþand
milli lengdarog þyngdarfisks.
Niðurstööur fyrir þorsk, ýsu,
ufsa og steinbit eru sýndar á
8. mynd.
Meðalþynd er mjög misjöfn
eftir fisktegundum og lýsir
þreytilegum vaxtarhraöa.
Ufsinn vex hraöst og er 2,3 kg
5 ára og 7,8 kg 10 ára. Athygli
vekur afbrigðilega lág meðal-
þyngd 9 ára ufsa af árgangi
1976. Þessa hefur orðið vart
áöur hjá þessum árgangi án
þess aö ákveðin skýring sé
tiltæk (Anonym. 1985). Ýsa
vex nokkuð hratt fyrstu 5—6
árin og er 2,1 kg 5 ára. Siðan
dregur verulega úr vexti
hennar, og er hún 4,9 kg 10
ára aö aldri. Þorskur vex
fremur hægt framan af og er
um 2 kg 5 ára. Siðan vex
hann tiltölulega hratt og er
orðinn þyngri en ýsa viö 7 ára
aldur. Viö 10 ára aldur er
þorskurinn 7,0 kg aö þyngd
aö jafnaði eöa nokkru léttari
en ufsi. Meöalþyngd steinbits
er mun minni en hjá þorsk-
fiskunum eöa um 0,2 kg viö 5
ára aldur, 1,0 kg við 10 ár og
2,6 kg viö 15 ára aldur.
Breytilegur vöxtur þorsk-
fiska, einkum þorsks, eftir þvi
hvar þeir alast upp viö landið
hefur veriö kunnur í megin-
dráttum frá þvi i byrjun þess-
arar aldar. Þessi munur kem-
ur mjög skýrt i Ijós í þeim
gögnum sem safnað var i
mars 1985 (9. mynd). Meðal-
þyngd þorsks er um þaö bil
tvisvar sinnum meiri á suður-
svæöinu eða 8,6 kg viö 9 ára
aldur miðað viö 4,7 kg á norö-
ursvæðinu. Hjá ýsu er þessi
munur miklu minni. Meðal-
þyngd 9 ára ýsu er 4,6 kg á
suðursvæðinu en 4,1 kg á
norðursvæðinu.
Hlutfall kynþroska fisks
eftir aldri er nokkuð breytilegt
hjá þorski, ýsu, ufsa og stein-
bit (10. mynd). Kynþroski
hefst raunar á svipuðum aldri
eöa hjá tveggja ára ýsu,
þriggja ára ufsa og steinbit og
hjá fjögurra ára þorski. Frek-
ari þróun kynþroskans er
hinsvegar nokkuö breytileg
eftirfisktegundum. Helmingur
fiska er kynþroska viö 5 ára
aldur hjá ýsu, viö 6—7 ára hjá
ufsa og viö 7 ára aldur hjá
þorski. Þessu stigi nær stein-
bítur á hinn bóginn ekki fyrr
en um þaö bil 9 ára aö aldri.
Fullum kynþroska er náö viö
um tvöfaldan aldur viö 50%
kynþroska, þ.e. hjá 10 — 11
ára ýsu, 12 ára ufsa, 14 ára
þorski og 18 ára steinbit.
Dægurgöngur
Eins og fram kom i inngangi
var mars valinn til gagnasöfn-
unar meöal annars vegna
þess aö dægurgöngur þorsks
eru með minna móti á þess-
um árstima. Gögn frá mars
1985 sýna aö dægurgöngur
viröast allbreytilegar eftir
fisktegundum (11. mynd).
Fjöldi þorska af öllum
stæröum var í lágmarki upp úr
miönætti, en í hámarki fyrir
hádegi. Fjöldinn var í heild