Sjómannablaðið Víkingur

Årgang

Sjómannablaðið Víkingur - 01.02.1986, Side 8

Sjómannablaðið Víkingur - 01.02.1986, Side 8
Enginn peningaskortur Texti og myndir: Sigurjón Valdimarsson fíabbað við Óla Jacobsen í Færeyjum Óli Jacobsen er formaður Foroya Fiskimannafelag. Það er félag sjómanna sem sækja lengra en svo að þeir nái heim að kvöldi. Sjómenn í Færeyjum sem róa á dag- róðrabátum, hafa sitt eigiö félag. Foroya Fiskimannafelag annast almenna samningagerð fyrir sína félagsmenn, en skipstjórnarmenn og vélstjórar hafa hvorir sitt eigið félag, sem annast sérkjarasamninga fyrir þá. Undirritaöur var á ferð í Færeyjum síösumars og rabbaði þá við Óla Jacobsen um fiskveiðimál Færeyinga og eitt hvað fleira. Þar kom á daginn að Færeyingar hafa sinn „djöful að draga“ engu síður en við íslendingar og þar sem þeir eru svo náskyldir okkur sem raun ber vitni, eru viðbrögö þeirra ekki svo ýkja frábrugðin okkar; þeir ýta vandanum á undan sér. Óli Jacobsen er ungur maður og alvörugefinn. Hann fagnar ókunnugum ekki af neinni yfirborðsmennsku, en er varkár og óaðfinnanlega kurteis. Hann býr í gömlu húsi í Þórshöfn, sem hann hefur endurbyggt, og á þar fallegt heimili með konu sinni og tveim börnum. Þar röbbuöum viö saman. Því miður gafst ekki tími til nánari kynna, en mér segja kunnugir að Óli Jacobsen sé afar viðfeldinn maöur, þeim sem hann tekur. Þess sáust raunar strax merki eftir þetta dagstundarrabb okkar. Höfnin á Eiði er falleg en ekki stór. Hlaðnir grjótveggir sjást víða í Færeyjum og eru flestir listasmíð. 1. „Ég hef verið formaður hér í fullu starfi í 15 ár“, upplýsir Óli, ,,en áður var ég á sjónum. Eins og aðrir færeyskir strák- ar fór ég til sjós fjórtán ára gamall. Á sumrin fór ég á is- landsmið á skak, upp á gamla móðinn. Ég stundaði sjóinn i um það bil tiu ár. Árið 1966 var ég kosinn i stjórn Foroya Fiskimannafelag og formaður árið 1971. Síðan hefur það verið aðalstarf mitt“. — Hvernig er að vera sjó- maöuríFæreyjum núna? „Það er mjög misjafnt. Við eigum stóran og fjölbreyttan fiskiskipaflota. Að hluta eru það skipin sem veiða á fjar- lægum miðum, veiða rækju eða vinna aflann um þorð í is eöa salt og eru að heiman þrjá til fjóra mánuði i einu. Þau veiða við Kanada, Ný- fundnaland, Grænland, Sval- barða og i Barentshafinu. Það má segja að þetta séu arf- teknar veiðiaðferðir Færeyinga, þar sem sjómenn eru að heiman allt upp i fimm mánuði i senn. Annar hluti flotans veiðir við Færeyjar. Það eru að hluta togarar og að hluta linubátar. Þeir eru úti eina til tvær vikur og jafnvel allt upp i þrjár stök sinnum. Þess vegna er útilokað að gefa algilda lýsingu á hvernig er að vera fiskimaður á fær- eyskum skipum". 2. — Hvernig skiptast skipin á fjarlæg miö og heimaslóö? „Þegar ég tók við for- mennsku hér fyrir um fimmtán árum, var mikill meirihluti

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.