Sjómannablaðið Víkingur - 01.02.1987, Page 20
Utanúrhcimí
20 VÍKINGUR
Herra hafsins —
Sovereign of the Seas
Seint á þessu ári hverfur
Norway í skuggan, sem
stærsta skemmtiferöaskip
veraldar. Arftakinn veröur
nýbygging sama eiganda, er
Frakkar afhenda í árslok.
Lengdin veröur 266 metrar
og hæöin frá kili aö skorsteini
60 m. Skrokkur og yfirbygg-
ing verður 14 hæöir. Far-
þegafjöldinn 2500 manns.
Áhöfn 750. Trúlega verður
fátt um norska áhafnarmeð-
limi, þvi allt á aö fara undir
Bahama- og Líberíufána.
Sparnaöur viö slikar aögeröir
fyrir allan flotann, ásamt
Sovereighn of the Seas, er
u.þ.b. 450 millj. n.kr.. Blóöugt
þaö. „ Samkeppnin er hörö
og ég verð að gera þetta",
segir Kloster.
Norskum farmönnum
fækkaöi um 12% á árinu
Norskum farmönnum
fækkaöi niöur í 24.500 á
kaupskipaflotanum, og út-
lendingum niöur i 6.100.
Mönnunarnefnd norsku
stjórnarinnar hefur nú gefið
út aö svokölluö öryggis-
mönnun á norsk skip verði 6
menn um borö i hverju skipi
óháö stærð. Slik áhöfn er
einungis ætluð til aö koma
skipi frá hafnsögumanni til
hafnsögumanns, segir orð-
rétt.
Kloster undir Bahama
fána
Á einu bretti tapa
500—800 Norðmenn atvinn-
unni viö aö Kloster færir öll
sin 8 skemmtiferðaskip undir
fána Bahama. Á skrifandi
stundu eru um 585 skip undir
norska fánanum, og yfir 700
undir erlendum fánum. Ris-
arnir: Bergesen, Wilhelm
Wilhelmsen og Leif Höegh
flytja nú skip sín yfir á aöra
fána i tuga tali. Fyrir áratug
átti Wilhelmsen um 100 skip
undir norskum fána, Leif
Höegh um 50 og Bergesn um
40. Hvert þessara félaga get-
ur nú notað eins stafs tölu á
skipafjölda sinn undir hinum
norska fána. Áöurnefnd félög
hafa nú sett skip undir er-
lenda fána aö tonnatölu yfir 3
milljónirtonna.
Fleiri norskir yfirmenn en
undirmenn atvinnulausir
1310 yfirmenn eru atvinnu-
lausir i Noregi en 1287 undir-
menn. Atvinnulausir stýri-
menn eru 504, skipstjórar
142, 110 yfirvélstjórar, 223
vélstjórar og 139/110 brytar-
/kokkar, mótormenn 143.
Þaö þýöir því lítiö, aö sækja
um pláss á norskum skipum i
dag.
„Örvæntingartilraunir
norskra
skipasmíöastöðva“
Fredrikstad Mekanisk
Versksted, reynir nú að ná
samningum um byggingu
tveggja meðal stórra tank-
skipa, er byggja á fyrir stuttar
siglingar frá norsku oliusvæö-
unum til Noregs (shuttle tank-
ere). Hyggjast þeir fá skrokk-
ana byggöa í Kína, en ætla svo
aö fullgera skipin í Noregi.
Margar Asiu þjóöir munu hafa
undirboöiö verkefnið.