Sjómannablaðið Víkingur - 01.01.1990, Page 17
. Á ÍSLANDSMIÐUM
Samband loðnuáts
þorsks og heildaráts
Á 3. mynd er samband
loðnuáts og heildaráts þorsks
sýnt fyrir fjögurra, sex og átta
ára þorsk, annarsvegar í mars
og hinsvegar í október/nóv-
ember. Ljóst er að hér er um
gott samband að ræða, einkum
í mars þegar það er marktækt
fyrir flesta aldursflokka. Að
hausti er sambandið þó aðeins
marktækt fyrir fjögurra ára
þorsk.
Samkvæmt þessu fer heild-
arát þorsks minnkandi með
minnkandi loðnuáti. Ef engin
loðna er étin er heildarátið
aðeins um það bil helmingur af
átinu þegar mest er étið af
loðnu. Þetta þýðiraðviðminnk-
andi framboð loðnu nær þorsk-
urinn ekki að afla sér uppbótar-
ætis nema um það bil að hálfu
leyti. Þetta virðist a.m.k. gilda
við skammtímabreytingar á
framboði loðnu eins og 1981-
83. Þróunin kann að verða önn-
ur ef slíkar breytingar reynast
varanlegri.
Tengsl áts,
vaxtarhraða þorsks
og þorskafla
Minnkandi át hlýtur að leiða
til minnkandi vaxtar. Til að
kanna stærðargráðu slíkra
breytinga er notað svokallað
hermilíkan, sem líkir eftir því
sem gerist í samspili þorsks og
loðnu við breytilegt framboð
loðnu. Aðrar forsendur eru
þyngd
Aldur
4
-o- 5
6
-o- 7
-a- 8
ii
3. mynd. Samband
loðnuáts og heildaráts
fjögurra aldursflokka
þorsks í mars og októ-
ber/nóvember (grömm
af loðnu per kg þorsks á
dag).
4. mynd. Reiknuð með-
alþyngd þorsks (kg) eft-
ir aldri meö tilliti til mis-
munandi loðnuafla.
VÍKINGUR 17