Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.01.1990, Síða 17

Sjómannablaðið Víkingur - 01.01.1990, Síða 17
. Á ÍSLANDSMIÐUM Samband loðnuáts þorsks og heildaráts Á 3. mynd er samband loðnuáts og heildaráts þorsks sýnt fyrir fjögurra, sex og átta ára þorsk, annarsvegar í mars og hinsvegar í október/nóv- ember. Ljóst er að hér er um gott samband að ræða, einkum í mars þegar það er marktækt fyrir flesta aldursflokka. Að hausti er sambandið þó aðeins marktækt fyrir fjögurra ára þorsk. Samkvæmt þessu fer heild- arát þorsks minnkandi með minnkandi loðnuáti. Ef engin loðna er étin er heildarátið aðeins um það bil helmingur af átinu þegar mest er étið af loðnu. Þetta þýðiraðviðminnk- andi framboð loðnu nær þorsk- urinn ekki að afla sér uppbótar- ætis nema um það bil að hálfu leyti. Þetta virðist a.m.k. gilda við skammtímabreytingar á framboði loðnu eins og 1981- 83. Þróunin kann að verða önn- ur ef slíkar breytingar reynast varanlegri. Tengsl áts, vaxtarhraða þorsks og þorskafla Minnkandi át hlýtur að leiða til minnkandi vaxtar. Til að kanna stærðargráðu slíkra breytinga er notað svokallað hermilíkan, sem líkir eftir því sem gerist í samspili þorsks og loðnu við breytilegt framboð loðnu. Aðrar forsendur eru þyngd Aldur 4 -o- 5 6 -o- 7 -a- 8 ii 3. mynd. Samband loðnuáts og heildaráts fjögurra aldursflokka þorsks í mars og októ- ber/nóvember (grömm af loðnu per kg þorsks á dag). 4. mynd. Reiknuð með- alþyngd þorsks (kg) eft- ir aldri meö tilliti til mis- munandi loðnuafla. VÍKINGUR 17

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.