Sjómannablaðið Víkingur

Årgang

Sjómannablaðið Víkingur - 01.01.1990, Side 26

Sjómannablaðið Víkingur - 01.01.1990, Side 26
Guðbjartur Gunnarsson stýrimaöur tók saman. Aðalsteinn Th. Gísla- son, öðru nafni Blá- steinn. 26 VÍKINGUR BLÁSTEINN KVEÐUR Maður er nefndur Aðalsteinn Th. Gíslason. Af mörg- um betur þekktur undir nafninu Blásteinn. Aðal- steinn er fæddur 22. júní 1918. Hann byrjaði sjó- mennsku á mótorbátnum Braga frá Njarðvík 1933 en 1936 fór hann á togara og eftir það er hann á togur- um til 1960. Þá réðst hann til Ríkisskipa og var báts- maður á strandferðaskipunum til 1976, utan eitt og hálft ár sem hann var hjá Eimskip. 1976 fór hann í land og varð þá verkstjóri hjá Ríkisskipum, en er nú hættur störfum. Aðalsteinn er maður vel hagmæltur og man ég það, er ég var á togara í kringum 1960, að oft var vitnað í hann af þeim sem þekktu, ef einhverj- um varð það á að reyna að hnoða saman vísu. Og alltaf var eins og hrifning væri í rómnum þegar minnst var á Blástein og kveðskapinn hans. Hann hefur haldið kveðskap sínum til haga og á orðið tals- vert safn á skrifuðum blöðum frá ýmsum tímum. Ekkert af kveöskap Aöal- steins hefur verið gefiö út, utan smá kver sem vinur hans, er vann í prentsmiðjunni Guten- berg, stalst til aö prenta í 30 eintökum. Tókst þeim félögum aö selja upplagiö svo dygöi fyrir drykkjarföngum eina nótt. Þegar ég skoðaði lítinn hluta af safni Aðalsteins varö mér fljótlega Ijóst að sá á kvölina sem á völina. Erfitt er aö velja og hafna, þegar velja skal sýn- ishorn skemmtilegra kvæöa til birtingar og plássiö er takmark- aö. Þaö sem hér birtist getur því aöeins orðið lítið sýnishorn af kveðskap sjómannsins Aöal- steins Th. Gíslasonar um starf- iö, landið og lífsviðhorf. Helsta tómstundaiöja Aöal- steins gegnum árin er aö yrkja. Þaö fer því vel á því aö byrja á hugleiðingum hans um þá iðju: Föndrið mitt - 9. des. 1957 Skáldapenna varla veld ég. Vísur mínar eru, held ég alltof klúrar fyrir fólk, er fordast drykki nema mjólk. Samt ég bara yrki ennþá ódinn klúra, svo að menn þá, sem ei vilja Ijóðin líta láti vera þau að nýta. Ég tel mig ekki vera verri venjulega, en kirkjuknerri,

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.