Sjómannablaðið Víkingur

Volume

Sjómannablaðið Víkingur - 01.01.1990, Page 29

Sjómannablaðið Víkingur - 01.01.1990, Page 29
LJÓÐAÞÁTTUR Skórnir slitna - 24. apríl 1979 Geng ég enn á gömlu skónum, er gaf mér Drottinn í eina tíð. Lítið þó væri af grundum grónum, geta þeir dugað enn um hríð. Ég arka svona til æviloka. Það eyðist sólinn, en komi gat, klerkar á mína kistu moka og kistan geymir hið slitna fat. Guðinn iætur svo kannski klossa karlinn hafa á nýjum stað. Þar sem sólir bjartar blossa og blómin spretta. Já, svo er það. En karlinn veit að klerkar Ijúga, þó karlinn trúi á annað líf. En ekki á stað þar sem englar fljúga og aldrei kemurnein hryðja stíf. En á líf, þar sem ennþá vaxa allar jurtir, sem maður þarf, fisk má veiða og líka laxa og lýjast áfram við daglegt starf. Lífsviðhorf - 30. sept. 1972 Ég trúi ei framar á gull eða glys, það gagnslítið reynist með lýðum. En trúin á landið ei fýkur sem fis, þó fari þar stormur með hlíðum. í æsku ég tignaði girndir og glaum. Á Guð ekki trúði, né landið. Nú veit ég að slíkra ævi er aum og ókleift að sleppa við grandið. Að tigna það illa en gleyma þér Guð, er glæpur sem vont erað skilja. Og þó að ég komist enn stundum í stuð við staup, ég grunda þinn vilja. Gömul vísa um góðan mann: Fíll að kröftum, fráneygur. Fús til verka, hraður. Öllu mætir ódeigur, Einar bræðslumaður. SAMÁBYRGÐ ÍSLANDS Á FISKISKIPUM LÁGMÚLA 9,128 Reykjavík. Pósthólf 8320 Sími 681400, Telex 3163 Samins IS, Telefax 84645 Starfssvið Samábyrgðar: Afla- og veiðarfæratryggingar Slysatryggingar sjómanna Skipatryggingar Rekstur Aldurslagasjóðs fiskiskipa Abyrgðartryggingar útgerðarmanna Farangurstryggingar skipshafna Endurtryggingar fiskiskipa undir 100 rúmlestum Skrifstofa Samábyrgðarinnar og eftirtaldir umboðsmenn vorir veita allar nauðsyn- legar upplýsingar varðandi tryggingar þessar og taka á móti tryggingarbeiðnum. Vélbátaábyrgðarfélagið Grótta, Reykjavík Bátatrygging Breiðafjarðar, Stykkishólmi Vélbátaábyrgðarfélag ísfirðinga, ísafirði Vélbátatrygging Eyjafjarðar, Akureyri Skipatrygging Austfjarða, Höfn, Hornafirði Vélbátatrygging Reykjkaness, Keflavík

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.