Sjómannablaðið Víkingur

Volume

Sjómannablaðið Víkingur - 01.01.1990, Page 30

Sjómannablaðið Víkingur - 01.01.1990, Page 30
FRIVAKTIN 30 VÍKINGUR Sú dökkbláa Hann leit út fyrir að vera um sjö ára gamall, pjakk- urinn sem stóð á gang- stéttinni og pissaði utan í húsvegg. Frú Binna átti leið um. Hún brosti hlýl- ega og sagði: — Jæja, kallinn minn, þú ert með einn svona lít- inn ... Pjakkurinn leit fýlulega á frúna: — Maður þarf nú ekki að draga út fleiri metra til að míga!! Þóra litla var send meö bréf á pósthúsiö og haföi með sér peninga fyrir frímerki. Þegar hún kom heim skilaöi hún pabba sínum peningunum. Pabbi vildi vita hvernig hún hefði farið aö. — Ég beið bara þangað til enginn var viö póstkassann og stakk þá bréfinu í hann. Óskar litli horfði mikið á frænda sinn sem hafði fengið gerviauga og spyr: — Er það úr postulíni? — Nei, sagði frændinn, það er úr g/eri. — Já, auðvitað. Annars hefðir þú ekki getað séð í gegn- um það. — Feldu þig, öskraöi hún. Maðurinn minn er að koma. Ástmaðurinn hljóp inn i klæðaskápinn. Þaðan heyrðist: — Upptekið. Yndislegur einkaritarl kom inn til forstjórans og sagði: — Ég hef fundið nýja stöðu. — Fínt, vi'ð reynum hana strax. — Ef þú nauðgar mér, hrópa ég. — Það heyrir enginn til þín. — Það veit ég vel. Mamman kom inn í herbergi dótturinnar á heldur óheppileg- um tíma og hrópaði: — Segðu honum að hætta strax. — Get það ekki, þú hefur bannað mér að tala við ókunn- uga. Hann varáleið heim frá jarð- arför konunnar sinnar. Þarsem hann gekk sorgmæddur og horfði til jarðar, sá hann ekki blómapottinn sem datt út um glugga á annari hæð, og fékk hann í hausinn. Hann heyrðist segja: — Ég hélt ekki að þú yrðir svona fljót upp, væna mín. — Mamma, hvar varst þú þegar ég fæddist? — Ég var heima hjá ömmu, barnið mitt. — Og pabbi? — Hann var í vinnunni? — Það þýðir semsagt að það var ekki sála heima þegar ég kom í heiminn. — Ég ætla að fá straujárn. — Á það að vera gufustrau- járn? — Gufu, er það ekki gamal- dags? Hafiði ekki disel? — Ég hélt ekki að mínum vinnustað stafaði nein hætta af sjálfvirkninni, en nú heyri ég að það eigi að fara að kaupa sjálf- virka kaffikönnu. Tveir bissnessmenn voru að sþjalla saman. — Ég lánaði Pétri hundrað- þúsundkall en ég fæ hann ekki aftur. Það versta er að ég er búinn að týna kvittuninni, svo ég er eiginlega ráðalaus. — Ég gef þér gott ráð, sagði hinn. Skrifaðu honum að þú viljir fá tvöhundruðþúsund krónurnar, sem hann skuldar þér, strax borgaðar. Þá skrifar hann til baka að það hafi aðeins verið 100.000-,, og þar hefur þú skuldaviðurkenning- una. Ferðamaðurinn stóð við Löginn og horfði út yfir vatnið. Þá kom hann auga á Palla gamla, sem var að eigra þarna um vatnsbakkann, og ávarpaði hann: — Heyrðu gamli minn, hef- urðu séð Lagarfljótsorminn? — Ojájá, svaraði Palli. En það var nú reyndar áður en ég I hætti að drekka.

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.