Sjómannablaðið Víkingur - 01.01.1990, Page 48
nyjuriGAR
TÆKNI
Mynd frá METE0SAT2
sem nær frá Sahara til
norður Noregs. Þetta
veðurtungl er kyrrstætt
yfir míðbaug og tekur
því allar myndir frá
sama sjónarhorni. Útlín-
ur landanna eru forrit-
aðar inn I mynni tungls-
ins og sjást því undir
skýjabreiðunni. Það er
erfitt að sjá útiínur ís-
lands á þessari mynd,
en ef vel er gáð má sjá
landið undir tölunni 45.
Jaðarsvæðin efst á
myndinni þarf að með-
höndla í tölvu til að sjá
hvernig veðrið er.
48 VÍKINGUR
spá til eins, tveggja eöa þriggja
sólarhringa. Veöurspáin er
ekki staðreynd svo að veðrið
getur orðið öðruvísi en gert var
ráð fyrir í spánni. Veðurspáin
byggir líka á mörgum veður-
þáttum sem hafa verið athug-
aðir á mörgum stöðum samtím-
is, bæði í landi og um borð í
skipum. Á sumum hafsvæðum
eru skipaferðir fátíðar og ann-
arsstaðar eru of fá skip sem
gera veðurathuganir. Þetta
hefur í för með sér að veður-
spáin byggir á ónógum upplýs-
ingum og veðurfræöingar
verða því að áætla legu þrýsti-
lína og þar með staðsetningu
hæða og lægða. Með tilkomu
veðurtungla sem annaðhvort
eru staðbundin yfir miðbaug
(METEOSAT2) eða hringsóla
umhverfis jörðina (NOAA) geta
veðurfræðingarnir með allmik-
illi nákvæmni staðsett hæðir og
lægðir.
Veðurtunglin senda til jarð-
arinnar myndir sem annað-
hvort eru venjulegar Ijósmyndir
eða hitamyndir (myndavélin
nemur hitageisla frá jörðinni).
Fram að þessu hafa tækin
sem notuð eru til að taka við
myndum frá tunglunum verið
nokkuð dýr og auk þess fyrir-
ferðarmikil. En tækninni fleygir
fram og nú eru þessi tæki á
viðráðanlegu verði, auk þess
sem þau eru fyrirferðarlítil,
vega aðeins 6 kg. Vestur-
þýska fyrirtækið KOEL ELEKT-
RONIK GMBH sérhæfir sig í
móttökubúnaði til viðtöku á
myndum frá veðurtunglum og
var tæki frá þessum framleið-
anda sýnt af ísmar hf. á sýning-
unni Betri brú. Tækiö sem
nefnist MOBSAT getur geymt
mest þrjár myndir sem teknar
eru í röð yfir nokkurt tímabil.
Þegar þær eru kallaðar fram
verða þær eins og hreyfimyndir
og sýna þá hreyfingu veður-
kerfanna. Skipstjórinn getur þá
fengið hugmyndir um hraða
skila, hreyfingu þokubakka og
skýja og séð hvort stormur er í
aðsigi. Enga sérstaka stillingu
þarf að gera á MOBSAT og
loftnet þarf ekki að stilla eftir að
það hefur verið sett upp. Þegar
kveikt er á tækinu tekur það á
móti myndum um leið og þær
berast frá veðurtunglunum. Við
ísland er best að nota myndir
frá NOAA tunglunum, myndir
frá METEOSAT2 tunglunum
þarf að meðhöndla í tölvu til að
þau verði læsileg þar sem ís-
land er það norðarlega á hnett-
inum.
NOAA tunglin taka myndirn-
ar á mismunandi tímum frá
mismunandi sjónarhornum.
MOBSAT býður upp á þann
möguleika að geyma myndirn-
ar í röð og þá er hægt að fá þær
fram í röð og sjá þannig breyt-
ingu sem hefur orðið yfir tiltekið
tímabil. Út frá því má síðan
áætla þær breytingar sem
framundan eru. Myndir sem
teknar eru í léttskýjuðu veðri
sýna hvernig hafísjaðarinn
liggur.
Til að gera sér betur grein
fyrir hvernig veðrið er þarf að
bera saman hitamynd og Ijós-
mynd. Það sem hvítt er á hita-
myndinni er kalt þess vegna
eru öll háský hvít, en lágský og
þoka eru dekkri. Á Ijósmyndinni
eru öll ský og þoka hvít og með
samanburðinum má því sjá
hvaða ský eru lágský og þá
hugsanlega þokuský. Skjár
MOBSAT er svart-hvítur, en
hægt er að tengja litaskjá við
tækið og greina hitamyndirnar
betur með litnum. Umboð hér á
landi fyrir KOEL ELEKTRONIK
GMBH hefur ísmar hf., Síðu-
múla 37, Reykjavík.
Kringlunnl.
Útbúum lyfjakistur
fyrir skip og báta.
Eigum ávallt tilbúin lyfjaskrín
fyrir vinnustaði, bifreiðar og
heimili.
Almennur sími 689970.
Beinar línur fyrir
lækna 689935.