Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.1995, Blaðsíða 11

Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.1995, Blaðsíða 11
Ólafur Ragnarsson og Þór í brúnni á Haváng. að vera í sex mánuði á ári. „Það var of dýrt að halda tvö heimili. Eg er á rútuskipi og þar sem ég er tvo mánuði á sjó á ég alltaf tvo mánuði í frí og kem því heirn. Ætli ég sé ekki meira heima hjá mér en flestir aðrir íslenskir heimilisfeður. Mér virðist sem Islendingar haldi að allt sé ódýrara í Svíþjóð en hér á landi, en svo er ekki. Það er margt dýrara þar en hér. Samt kemur varla til greina að söðla um og fara á skip hér á landi þótt pláss byðist. Reyndar gæti ég hugsað mér að vera hjá Eimskip, en hjá Samskip vil ég ekki vera.“ LEGGUR SJÓ ALLAN VETURINN Þór segir það ekki auðvelt að ráða sig á skip í Svíþjóð. Því íylgi pappírsvinna og námskeið og þá þarf að geta gert sig þokkalega skiljanlegur á sænsku. „Þegar ég kom íyrst til Svíþjóðar naut ég aðstoð- ar Ólafs Ragnarssonar og Atla Michaels- sonar, en þeir hafa báðir verið stýrimenn á sænskum skipum í noltkur ár. Eitt það íyrsta sem verður að gera er að fara í próf, eins og ég nefndi áðan. Meðal þess sem þar er kennt og prófað er vinnulöggjöfm sænska.“ Þór er stýrimaður á Borre. Skipið er mest í flutningum fyrir stálgerð í Norð- ur-Finnlandi, rétt við landamæri Sví- þjóðar og Finnlands. Þar leggur sjó allan veturinn. Þeir sigla um alla Evrópu, mikið til Danmerkur, Hollands og víðar. Þegar þeir eru ekki með stál flytja þeir mikið af lausum kolum, áburði og timbri. Þór segir að aðbúnaðurinn og Iífið um borð sé svipað því sem er á ís- lenskum skipum. En er Islendingum tekið sem inn- fœddum ? „Eg var heppinn, þar sem ég talaði sænsku. Þeir sem gera það ekki eru verr settir. Það er nauðsynlegt að geta talað málið. Reyndar er eitt sem er ólíkt með sænskum og íslenskum sjómönnum, en það er hversu veðurhræddir Svíarnir eru. Þeir hlusta á allar veðurspár og verða órólegir ef spáð er slæmu veðri. Ég var að stríða þeirn um daginn að til stæði að við færum til Islands. Ég held að þeir hafi allir viljað fara í frí! Þeim leist engan veg- inn á að sigla yfir Norður-Atlantshafið.“ SKIPUM SKRÁÐUM í SVÍÞJÓÐ FJÖLGAR „Svíar hafa gert milcið til að fá skip aftur skráð í Svíþjóð og það hefur borið talsverðan árangur. Ég held að á þessu ári sé búið að skrá fimmtán skip í Svíþjóð. Skip sem áður voru undir erlendum fánuin. Það hafa verið gefin eftir gjöld á útgerðina, sem skilar sér með þessu. Mér virðist sem nú sé auðveldara að fá vinnu en áður. I apríl var undantekning ef auglýst voru störf stýrimanna á sænskum skipum. Nú eru auglýst þrjú til fjögur störf í hverri viku. Þeir sem hugsa sér að fara út verða að vera tilbúnir að fara í gegnurn pappírsvinnuna, sem er nauð- synleg og gefa sér þann tíma sem nauð- synlegur er. Þeir sem eru sæmilegir í sænsku þurfa að gera ráð fyrir að það taki um mánuð að öðlast stýrimannsrétt- indi.“ Þór segir að meira sé gert fyrir farmenn á sænskum skipum en íslenskum í er- lendum höfnum. „Sænska sjómanna- kirkjan er mjög virk víða um Evrópu. Hún sér okkur fyrir afþreyingarefni á sjóinn og eins gengst hún fyrir íþrótta- mótum, þar sem meðal annars er keppt í fótbolta, handbolta, frjálsum og fleiru. Við höfðum trassað það mikið að vera með, en fyrir skömmu tók ég þátt í kúlu- varpi og náði fjórða sæti, sem gaf okkur á Borre 760 stig. Það er létt yfir þessum mótum og gaman að taka þátt í þeim.“ Þór segist tilbúinn að aðstoða þá sem hugsa sér að ráða sig á sænsk skip. Heimilisfang Þórs í Svíþjóð er; Þór Kristjánsson, Betgatan 148 b, Simris- hamn, Sverge. Borre á siglingu. Skipum skráðum í Svíþjóð hefur fjölgað mikið á allra síðustu árum. Nú eru 146 skip skráð í þar í landi. VlKINGUR 11
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.