Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.1995, Page 27
Síðastliðið sumar bauð Landhelgisgæslan nokkrnm ungmennnm á landinu í
starfskynningu um borð í varðskipum sínum. Hópurinn samanstóð af strákum
og stelpum og ein þeirra er Kristbjörg Eva Halldórsdóttir, sextán ára nemandi í
Fj ölbrautaskóla Suðurnesj a.
Vinum mínum fannst
ég frekar riigluð að
fara á sjó
„Ég var dregin úr hóp úr bekknum
mínum, hringt í mig og tilkynnt að ég
væri að fara með varðskipi í starfskynn-
ingu,“ sagði Kristbjörg Eva í samtali við
Víkinginn. Hún fór með varðskipinu Tý
í hringferð um landið í sautján daga.
„Okkur var skipt niður á vaktir og
fengum að vinna með áhöfninni um
borð. Við vorum sjö í hópnum og þar af
tvær stelpur," sagði Kristbjörg Eva. Hún
viðurkenndi með semingi að hún hefði
verið sjóveik fyrstu dagana og aðallega
þegar skipið fór fyrir Reykjanesið.
„Þetta var allt ný reynsla fyrir mig enda
elcki vön að vera á sjó. Ég væri samt alveg
til í að vinna á svona skipi í framtíðinni
ef það byðist.“
MATURINN EINS OG Á FÍNASTA
HÓTELI
Kristbjörg er á fyrsta vetri í Fjölbrauta-
skólanum en er óráðin með framhaldið.
Helst er það viðskiptasvið sem freistar.
Kristbjörg segir að hún og ltin stelpan,
sem er frá Neskaupstað, haldi sambandi
og tvo stráka hafi hún hitt síðar til að
heilsa þeim á götu.
Fcmnst vinum þínwn og kunningjum
þú vera heppin aðfá þetta tœkifœri?
„Eiginlega ekki. Þeim fannst ég frekar
rugluð að vilja eyða sumarfríinu um
borð í skipi.“
Að sögn Kristbjargar Evu var vel
hugsað um þau um borð. Maturinn hafi
verið góður, eiginlega of góður.
„Þetta var eins og á fínasta hóteli, tvær
heitar máltíðir á dag,“ sagði hún en bætti
við að hún hefði samt ekki fitnað.
Krakkarnir voru styrktir af sveitar-
félögunum til fararinnar en fengu engin
laun fyrir vinnu. Kristbjörg sagðist hafa
lært heilmikið um Landhelgisgæsluna og
hlutverk hennar.
„Ég vissi ekkert um Landhelgis-
gæsluna fyrir og ég mæli með því að þeir
sem hafa tækifæri til að prófa svona ferð
geri það hiklaust.“ -Jj
Kristbjörg Eva í brúnni á varðskipinu Tý.
27