Sjómannablaðið Víkingur

Volume

Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.1995, Page 44

Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.1995, Page 44
Þorsteinn Pálsson sjávarútvegsráð- herra ávarpaði þingið. UM SÖLU FISKS Á MARKAÐI 37. þing FFSI ítrekar að allur fiskur verði seldur á markaði. UM STJÓRNKERFI FISKVEIÐA INNAN LÖGSÖGU ÍSLANDS 37. þing FFSI telur að framkvæmd á gildandi kerfi um stjórn fiskveiða sé and- stæð hagsmunum sjómanna og gildir þá einu um allar kvótabundnar fiskteg- undir. Umsvifamikil sala og leiga á kvóta er látin bitna á kjörum sjómanna með því að tengja aflahlut þeirra við þessi viðskipti með vitund stjórnvalda. Ur- skurðarnefnd sjómanna og útvegsmanna um fiskverð er ein helsta von sjómanna eins og nú standa sakir til þess að fá hlut sinn Ieiðréttan gegn því óréttlæti sem viðgengist hefur árum saman með vilja og vitund forystu samtaka útvegsmanna. Þessa leiðréttingu á kjörum sínum urðu sjómenn að knýja fram með verkfalli allra heildarsamtaka sjómanna á síðast- liðnu vori. Það er vilji Farmanna- og fiskimannasambands Islands að ná sátt um réttlátt stjórnkerfi við fiskveiðar þar sem öll viðskipti með leigukvóta innan árs yrðu afnumin. Óbreytt framkvæmd gildandi kvótakerfis mun ekki leggja þann grunn að sátt verði um aðgang að auðlindinni. Sá fiskkvóti sem ekki veið- ist vegna þess að sala og leiga á aflaheim- ildum yrði afnumin tryggir aðeins fljót- ari uppbyggingu fiskistofna á íslandsmiðum sem 37. þing FFSl vill stuðla að með ábyrgum hætti. UM AUKNINGU ÞORSKKVÓTA 37. þing FFSl leggur til að þorskkvóti verði aukinn að minnsta kosti um 50 þúsund tonn í ár. UM HVALVEIÐAR 37. þing FFSl skorar á stjórnvöld að heimila hvalveiðar undanbragðalaust á næsta ári. Byggt verði á tillögum vísindamanna um nýtingu á þeim tegundum hvala sem taldar eru þola veiðar. UM RÉTT NORÐMANNA TIL SVALBARÐA 37. þing FFSl skorar á stjórnvöld að láta reyna á réttarstöðu íslendinga og Norðmanna varðandi Svalbarðasamn- inginn fyrir alþjóðlegum dómstólum. Greinargerð: Flafsvæðið kringum Svalbarða og Barentshafsvæðið hafa Norðmenn eignað sér og hafa hinn svokallaða Svalbarðasamning sér til stuðnings. En Svalbarðasamningur segir aðeins að Norðmenn skuli hafa yfirum- sjón með auðlindum á Svalbarða, sem og 4 sjómílna lögsögu. Þessi samningur hef- ur verið samþykktur af fjölda þjóða, þar á meðal Islendingum, en hann segir ekkert um það að Norðmenn hafi átt rétt til þess að færa út lögsögu Svalbarða, sem og annarra eyðieyja þar um kring, í 200 sjómílur. Auk þess er það í andstöðu við hafréttarsáttmála. UM UPPSÖGN LOÐNUSAMNINGS 37. þing FFSI skorar á stjórnvöld að segja upp núgildandi loðnusamningum á milli Grænlendinga, Norðmanna og Islendinga, þannig að fyrir liggi nú þegar að samningurinn falli úr gildi 30. apríl 1998. UM GAGNKVÆMAR VEIÐI- HEIMILDIR 37. þing FFSÍ skorar á stjórnvöld að samþykkja eldd gagnlcvæmar veiðiheim- ildir, annars vegar í Barentshafi og hins vegar í íslenskri efnahagslögsögu. UM FJÁRVEITINGAR TIL LANDHELGISGÆSLUNNAR 37. þing FFSI skorar á Alþingi og ríkisstjórnina að beita sér fyrir auknum fjárveitingum til Landhelgisgæslu Is- lands, þannig að hægt verði að halda uppi fullnægjandi eftirliti með efnahags- lögsögu landsmanna og tryggja örugga björgunarþjónustu fyrir sjófarendur við Island. Þingið lýsir furðu sinni yfir þeir- ri skerðingu sem er á fjárveitingum til rekstrar varðskipanna í fjárlagafrum- varpinu fyrir árið 1996 og treystir því að þessi mistök verði lagfærð í meðförum Alþingis á fjárlögum fyrir árið 1996. Það er nöturlegt að kaupa nýja og full- komna björgunarþyrlu og geta ekki gert hana út, nema skerða útgerð varðskip- anna Greinargerð: A undanförnum árum hafa stjórnvöld skorið mikið niður fjár- veitingar til Landhelgisgæslunnar og er nú svo komið að stofnunin er rekin í algjöru lágmarki. Niðurskurðurinn hefur bitnað hvað mest á útgerð varðskipanna. Það hlýtur að verða Grétar Mar í ræðustól. 44

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.