Sjómannablaðið Víkingur - 01.06.1997, Qupperneq 11
indum. Klukkustund eftir
óhappið sáum við hvar TF-LÍF
settist á bjargbrúnina. Það
vara mikill léttir.
Að því kom að önnur anker-
isfestingin slitnaði. Þá var
ákveðið að þyrlan næði í hluta
okkar, en sex menn voru hífðir
um borð í hana. Við vorum
fjórir eftir, ég, stýrimaðurinn og
báðir vélstjórarnir. Skömmu
síðar slitnaði hin ankerisfer-
stingin og þá tók þátinn að
reka flatt og valt hann þá mik-
ið. Þyrlan kom aftur og sótti
tvo menn til viðbótar, ég og
annar vélstjóri urðum eftir um
borð, en þá áttum við aðeins
0.4 mílur í land og dýpið var
ekki nema 18 faðmar. Freyr
nálgaðist okkur og ég beið
þess að þeir kæmu í tæka tíð,
en Ijóst var að við vorum að
niissa frá okkur öll tækifæri á
að bjarga bátnum. Ég gekk um
bátinn gjörsamlega ráðþrota."
TeK EKKl ÁHÆTTU MEÐ ANN-
ARRA LÍF
„Þegar hér var komið var
ijóst að ekki yrði hægt að bjar-
ga bátnum, eða það var alla
vega fátt sem benti til þess.
Annars vélstjóri var hífður um
borð í TF-LÍF, ég get ekki tekið
ÁHFÖFNIN Á TF-LIF AÐ HÍFA MENN FRÁ BORÐI Á ÞORSTEINI GK. 10. MARS SÍÐSTLIÐINN, EN EINS OG ALLIR
VITA TÓKST AÐ BJARGA ÖLLUM MÖNNUNUM.
áhættu með annarra líf, bara
mitt eigið. Ég vildi freista þess
að vera eins lengi um borð og
hugsanlega var hægt, því hefði
Freyr komið tímanlega hefðu
þeir fengið í mesta lagi eitt
tækifæri til að koma taug yfir til
okkar, það hefði getað dugað.
Því miður gekk það ekki og ég
varð að taka erfiðustu ákvörð-
un sem ég hef tekið, að yfir-
gefa skip mitt, gera það mann-
laust vitandi þess að eyðilegg-
ing biði þess. Það er eitthvað
það erfiðasta sem skipstjóri
getur þurft að gera.
Það er erfitt að lýsa hvað fór
um huga minn þennan tíma,
ég veit það varla, það gekk á
það mörgu. Síðustu mínúturn-
ar um borð voru erfiðara, velt-
ingurinnn var mikill og öll von
um björgun bátsins fór þverr-
andi.
Ég verð að segja, úr því
þetta þurfti að henda okkur, að
þá fór þetta vel. Það varð ekki
mannsskaði, mannslíf bætum
við ekki, en öðru gegnir um
veraldlega hluti, svo sem
báta.“
Ásgeir segir, þó nokkrar vik-
ur séu frá óhappinu, líði varla
þORSTElNN GK 16, BÁTURINN SEM VAR KEYPTUR FRÁ STYKKISHÓLMI.
röfltfe '.L,.
.... ^
SJÓMANNABLAÐIÐ VÍKINGUR
11